(35) Blaðsíða 35
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna
Gagnlegar upplýsingar
fyrir þá sem eiga í vændum að fara í stómaaðgerð
eða eru nýkomnir úr slíkri aðgerð
Inngangur
Það er eðlilegt að þú, lesandi góður,
spyrjir sjálfan þig hvernig lífið verður eftir
þessa aðgerð. Er ekki bara svartnætti
framundan? Hvernig get ég horfst í augu
við fjölskyldu og vini með þennan poka
á maganum? Breytir það ekki töluverðu
fyrir líkamsímynd mína að vera með poka
á maganum? Eða tekst mér að vinna
mig út úr þessum sálrænu örðugleikum
og takast á við lífið á nýjan leik?
Stóma er ekki sjúkdómur
heldur afleiðing af skurðaðgerð.
Við sem höfum gengist undir stóma-
aðgerð höfum að sjálfsögðu spurt okkur
þessara spurninga og velt fyrir okkur
hvers konar lífi við myndum lifa eftir
aðgerð. Það er líka ofur eðlilegt að þú fáir
áfall þegar þú sérð pokann í fyrsta sinn
- að maður tali nú ekki um sjálft stómað.
En flest okkar a.m.k. hafa komist yfir þessa
sálrænu örðugleika sem óhjákvæmilega
fylgja slíkri skurðaðgerð. Stómað og
pokinn verða bara hversdagslegur hluti af
þínu lífi, þinni líkamsímynd.
Það er að sjálfsögðu afar einstaklings-
bundið hversu lengi þú ert að ná þér
líkamlega og andlega. Hvað andlegu
hliðina varðar skiptir auðvitað talsverðu
máli hvort þú veist með góðum fyrirvara
í hvers kyns aðgerð þú ert að fara
eða vaknar upp dag einn með poka á
kviðnum án þess að hafa haft hugmynd
um að slíkt stæði fyrir dyrum.
Við sem höfum gengist undir stóma-
aðgerð höfum öll upplifað tímabil þar
sem reyndi á sálarstyrk okkar fyrst eftir
aðgerð. En okkur hefur tekist, a.m.k.
allflestum okkar, að vinna okkur út
úr þessum andlegu vandkvæðum og
takast á við hversdagsleikann í sinni
margbreytilegu mynd. Það sem meira er:
Okkur líður mun betur, bæði líkamlega og
andlega, í dag helduren þegar veikindin
hrjáðu okkur stöðugt áður en til aðgerðar
kom. Þetta biðjum við þig að hafa í huga,
kæri lesandi.
Það er líka margt verra en að lenda
í stómaaðgerð og við skulum minnast
þess að góðar horfum eru á bata eftir
lífshættulegan sjúkdóm.
Hvers konar aðgerð?
Að jafnaði er talað um þrenns konar
stómaaðgerðir en þær eru garnastóma
(ileóstóma), ristilstóma (kólóstóma) og
þvagstóma (úróstóma).
Þegar garnastóma er gerð er
allur ristillinn fjarlægður ásamt enda-
þarminum og tengt beint á milli garn-
anna og stómans. Úrgangurinn sem
kemur í pokann er þá frekar þunnur. Við
ritilstóma er hluti ristilsins fjarlægður og
þá neðri hluti hans. Er þá tengt beint frá
ristlinum í stómað en útskilnaðurinn er
mun þykkari en hjá garnastómaþegum.
Þvagpoka fá þeir sem farið hafa í upp-
skurði vegna nýrnaaðgerðar eða galla
eða sýkingar í þvagblöðru og fer þá
vökvinn í þvagpoka. Þess háttaraðgerðir
eru mun færri en aðgerðir vegna ristils.
Sá sem er með poka á kviðnum hefur
enga stjóm á því sem kemur í pokann.
Þess vegna þarf að gæta þess að tæma
hann reglulega. Einnig þarf að gæta þess
að skipta um poka og/eða plötu reglulega.
Það er afar misjafnt hversu lengi plata
endist hjá hverjum og einum. Sumir þurfa
að skipta um allt daglega, aðrir láta nægja
að skipta um á 5-7 daga fresti. Og þeir
sem nota lokaðan poka þurfa vitaskuld
að skipta oftar um en þeir sem eru með
tæmanlega poka. Ristilstómaþegar
nota að jafnaði einnota poka en
garnastómaþegar tæmanlegan poka. í
einstaka tilfellum geta ristilstómaþegar
notað tæmanlegan poka eða það sem við
köllum venjulega ileóstómapoka.
Maður á að sætta sig við
það sem maður fær ekki
breytt en ekki það sem
hægt er að breyta.
Innvortis pokar
Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að
í stað stóma eru gerðir innvortis pokar
og á það jafnt við um þá sem lenda í
ristilaðgerðum sem aðgerðum vegna
galla í þvagleiðara eða þvagblöðru.
Þeir sem fara í slíka aðgerð vegna ristil-
sjúkdóms fá svonefndan garnapoka. En
til þess að unnt sé að gera slíka aðgerð
verður endaþarms- eða hringvöðvinn að
vera í lagi og að neðsti hluti ristilsins hafa
verið skilinn eftir. Ýmsar aukaverkanir
kunna að fylgja í kjölfar slíkra aðgerða
auk þess sem lyfjanotkun er nauðsynleg
en mestar líkur á að allt gangi vel eru hjá
yngra fólki og fólki á miðjum aldri sem er
líkamlega vel á sig komið að öðru leyti.
Nýblaðra nefnist innvortis þvagblaðra
35
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44