(22) Page 20
20
Haraldur Sigurðsson
Horrebow, Niels. Land-Kort over Island
(Kjöbenhavn 1752, 30.2X38.5 sm).
Árið 1721 hófst danska stjómin handa um
mælingu íslands og skyldi mæla bæði byggðir
og óbyggðir. Til verksins var valinn Magnús
Arason frá Haga á Barðaströnd, verkfræðingur
í danska hemum. Hann drukknaði á Breiða-
firði í ársbyrjun 1728, en við verkinu tók
norskur liðsforingi, Th.H.H. Knoff og lauk því
1734. Hann dró saman hin ýmsu héraðakort
þeirra Magnúsar og gerði heildarkort af land-
inu 1734. En útgáfu þess var ekki hraðað, því
að það var ekki prentað fyrr en á þessari öld.
Þegar bók Horrebows, Tilforladelige Efter-
retninger om Island, birtist fylgdi henni eftir-
mynd Knoffs-kortsins, heldur fátækleg að allri
gerð. Vegna þess að kortið birtist í bók Horre-
bows er það oft kennt við hann, en ekki er nein
vissa fyrir þátttöku hans í gerð þess, nema
breytingum á hnattstöðu fáeinna staða, sem
hann mældi.
Island (9.7 X 14.5 sm).
Engin greinargerð fylgir um uppruna kortsins,
en það mun þó vera danskt. Á það er prentaður
mælikvarðinn 1:4.500.000. Gerðin bendir til
ofanverðrar 19. aldar eða fyrra hluta hinnar 20.
ísland á ofanverðri tíundu öld eptir Krists
burð ok um aldamótin ár 1000 (28.2X45.3
sm).
Kortið fylgir fyrsta bindi Islendingasagna, sem
Fornfræðafélagið danska hóf að gefa út 1843.
Segir í formála bókarinnar, að það sé gert eftir
bestu mælingum sem fengust. Það fylgir
Landnámuútgáfu Jóns Sigurðssonar, en er þó
ætlast til að það komi lesendum að haldi við
lestur annarra fslendingasagna.
Kortið er gert eftir strandmælingunum
1801—1818, hvað strandlínur snertir, en inn til
landsins byggir það að verulegu leyti á korti
Jóns Eiríkssonar og Olaviusar með ýmsum
lagfæringum.
Jefferys, Thomas. A New and Correct Chart
of Europe by Thomas Jefferys, Geographer
to His Royal Highness, the Prince of Wales
(31.3X27.5 sm).
Thomas Jefferys var enskur landfræðingur,
eirstungumaður og bókaútgefandi í London.
Hann gaf út mikinn fjölda alls konar korta um
miðja 18. öld. Kortið er sennilega úr Landa-
fræði, sem gefin var út í London 1749.
Jón Eiríksson og Ólafur Olavius. Nyt Carte
over Island paa nye igiennemseet og for-
bedret ved Etats Raad Erichsen og Cammer
Secret. Olavius. (Kjöbenhavn) Aar 1780
(43.6X55.5 sm).
Kortið fylgir Ferðabók Olaviusar: Oeconomisk
Reise igiennem Island, 1780. Undirstaða þess er
Knoffs-kortið frá 1761, sem verulegar lagfær-
ingar hafa verið gerðar á. Jón Eiríksson og
Gerhard Schöning lagfærðu Knoffs-kortið
verulega með korti því, sem fylgdi Ferðabók
Eggerts Ólafssonar. Hér hefur enn verið bætt
um, einkum um þá hluta landsins, þar sem
Olavius ferðaðist: ísafjarðar- og Strandasýslur,
Norðurland og mikinn hluta Austfjarða.
Einnig virðist gæta staðkynna Jóns Eiríkssonar
um Austur-Skaftafellssýslu.
Knoff, Th. H. H. Insvlae Islandiae. Niim-
berg 1761. (47.1 X58 sm).
Árið 1761 gerðu Danir loks gangskör að því að
birta niðurstöðumar af mælingum þeirra
Magnúsar Arasonar og Knoffs á árunum
1721-1734. Það var Otto Manderup Rantzau
stiftamtmaður, sem beitti sér fyrir þvi og fékk
verkið í hendur einu af kunnustu kortagerðar-
fyrirtækjum álfunnar, Die Hománnischen
Erben í Númberg. Kortið er að sjálfsögðu
mjög minnkað, en að öðm leyti sæmilega
traust eftirmynd frumkortsins.
Kort þetta varð síðar með endurbótum Jóns
Eiríkssonar, Gerhard Schönings og Ólafs
Olaviusar undirstaða flestra hinna betri ís-
landskorta fram um 1820 og jafnvel nokkru
lengur.
Laurent, J. Carte du Groenland dressée et
gravée par Laurent 1770 (19.3 X25.2 sm).
Kortið er í frönsku ferðasögusafni, sem Jean
Fran^ois de la Harpe gaf út, en það var úrval úr
safni Ant. F. Prévosts, Histoire générale des
voyages, sem kom út í 25 stórum bindum á
árunum 1747—1780 og þýtt var á ýmis tungu-
mál.
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Back Cover
(28) Back Cover
(29) Scale
(30) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Back Cover
(28) Back Cover
(29) Scale
(30) Color Palette