loading/hleð
(5) Page [5] (5) Page [5]
Sýningarskrá Fyrir þvergafli salarins er eitt af leiktjöldum Sigurðar málara, baktjald úr 1. þætti Utilegumannanna (Skugga-Sveins), líklega íuálað' 1872. „Leiksviðið er heiðarbrún, beggja vegna eru hamrar, öðru megin varða. Fyrir miðju leiksviði sést ofan yfir fagurt fjallahérað með jöklum og grænum dalshlíðum“ — Til hliðar við leiktj aldið er öðrum megin brjóstmynd Guðmundar Einarssonar frá Miðdal af Sigurði málara, hinum meg- in skautbúningurinn, sem upp var tekinn að frumkvæði Sigurðar. — Ofan við eru skjaldarmerki nokkurra íslenzkra miðaldamanna (eins og Sigurður hugsaði sér þau), upphaflega gerð til skrauts í samkomusal. — Við austurvegg er koffort, sem eftirlátin handrit og uppdrættir Sigurðar hafa lengi verið geymd í. Hátt á sama vegg er fáni, gerður samkvæmt tillögu Sigurðar. Sýniborð 1. SÝNIBORÐ: Haugfé frá Baldursheimi í Mývatnssveit. Þessi fundur varð tilefni þeirra skrifa Sigurðar, sem leiddu til stofnunar Forngripasafnsins. 2. SYNIBORÐ: Málarakassi Sigurðar og litaspjöld; hið stærra hafði Þorsteinn málari Guðmundsson átt á undan Sigurði. Auk þess teiknibók frá æskuárum með mynd af séra Pétri Guðmundssyni bróður Sigurðar, teikningar eftir gömlum hand- ritum, lágmynd af Gísla Konráðssyni o. fl. 3. SÝNIBORÐ: Vinstra megin eru sýnishorn af uppdráttum fyrir baldíringar og útsaum á kvenbúninga. Hægra megin nokkur af frumdrögum Sigurðar að merki Islands og fána. 4. SÝNIBORÐ: Sýnishorn af handritum, kvæðum, ritgerðum, leikritum, minnis- blöðum og minnisbókum. 5. SÝNIBORÐ: Nokkur plögg varðandi Sigurð, m. a. samskotalistar honum til styrktar á námsárunum. Auk þess bréf, m. a. frá foreldrum hans og séra Pétri bróður hans. 6. SÝNIBORÐ: Nokkur bréf og reikningar til Sigurðar, ennfremur sýnishorn af bréfum hans til Steingríms skálds Thorsteinssonar og Helga Hálfdanarsonar lektors.


Sigurður Guðmundsson málari

Year
1958
Language
Icelandic
Pages
8


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Sigurður Guðmundsson málari
https://baekur.is/bok/99d47343-1541-4105-8511-e1cee9eddfcd

Link to this page: (5) Page [5]
https://baekur.is/bok/99d47343-1541-4105-8511-e1cee9eddfcd/0/5

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.