(11) Blaðsíða 9
af sjálfstæðri eftirlitsstofnun. Jafnframt verði það í vaxandi mæli
unnið í samvinnu við starfsfólk fiskvinnslunnar.
Við viljum halda sveitum landsins í byggð og skila komandi
kynslóðum betra landi. Við viljum stefna að traustum landbúnaði
sem fullnægir innanlandsmarkaði.
Við viljum auka fjölbreytni landbúnaðarafurða og fullvinna
þær hér. Við leit nýrra markaða erlendis verður að bjóða íslensk-
ar landbúnaðarvörur sem sérstaka gæðavöru.
Við viljum að vinnsla landbúnaðarafurða verði sem næst fram-
leiðslustað. Með því er tryggt betra hráefni og atvinna skapast í
dreifbýli umfram það sem nú er.
Við viljum ekki frekari stóriðju hvorki innlenda né erlenda.
Stóriðja hefur kostað okkur hundruð milljóna í rekstrarstyrkjum,
erlendum lánum og fríðindum ýmis konar og hefur ekki skilað
okkur arði. Stóriðju fylgir byggðaleg og félagsleg röskun og
mengun af ýmsu tagi. Hvort tveggja hefur ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar fyrir land og þjóð. Stóriðja er ekki atvinnuskapandi miðað
við þann fjármagnskostnað sem henni fylgir. Fram til aldamóta er
búist við því að a.m.k. 25 þús. manns komi út á vinnumarkaðinn.
Stóriðjuuppbygging í samræmi við stórvirkjanaáætlanir til sama
tíma mundu aðeins veita tæplega 6% af því fólki atvinnu.
Við viljum því ekki frekari stórvirkjanir heldur virkjanastefnu
sem miðar við okkar eigin þarfir. Við viljum ekki frekari erlendar
lántökur til rekstrar óarðbærra fyrirtækja. Við viljum að aukin
tækni verði nýtt til þess að stytta vinnutíma án þess að rýra launa-
kjör.
Við viljum að tryggt verði að tölvunotkun verði ekki til þess að
draga úr atvinnumöguleikum kvenna.
Við viljum að grundvöllur hvetjandi launakerfa verði endur-
skoðaður og að við þá endurskoðun verði gæði og nýting hráefnis
metin til launa í stað hraða og afkasta.
9