loading/hleð
(48) Page 48 (48) Page 48
dikt Gröndal ritstjóri bar slíkan málflutning á borð fyrir þjóðina í útvarps- umræðum um hlutleysi. Erfitt er að hugsa sér hroðalegri munnsöfnuð. All- ur heimurinn veit, að kjarnorkusprengjum hefur verið beitt í hern- aði með hræðilegustu afleiðingum. Hvert mannsbarn veit einnig, að stór- veldin keppast við að hlaða vopnabúr sin vetnissprengjum og langdrægum eldflaugum til hernaðarnota. Æðstu menn kjarnorkuveldanna viðurkenna og fara hreint ekki dult með: að eigi þurfi nema slys til að þessum gereyð- ingarvopnum verði látið rigna yfir heimsbyggðina. Hætta á kjarnorkustyrj- öld er með öðrum orðum jafn blákaldur veruleiki og hver önnur slysahætta, aðeins milljón og aftur milljón sinnum geigvænlegri. Því liggur beint við að spyrja þessa herra: ef ég vara mann við að ganga í veg fyrir bíl, sem kemur æðandi eftir götunni, er ég þá að hóta honum að láta ökuníðing- inn aka yfir hann, drepa hann eða limlesta? Ef ég vara mann við að láta ginna sig út á óheldan ís, er ég þá að hóta því að drekkja honum? Nei, menn sem þannig mæla treysta sér ekki lengur til að verja afstöðu sína málefnalega. I þess stað reyna þeir að berja niður alla andstöðu með kaldrifjuðum falskröksemdum af þessu tagi, jafnframt því sem þeir leitast við að tvístra hernámsandstæðingum með hótunum, háði, lævíslegum dylgj- um, að ógleymdri gömlu aðferðinni: að kalla kommúnista alla þá, sem andvígir eru hersetunni. En hætt er við, að þeim þætti þá ótryggt iið margt í landinu nú, ef þeir ætluðu að beita slíku fjármannsskyni við að skilja sauði frá höfrum, enda eru þeir komnir í mestu vandræði vegna þessarar kenningar: hægt er að benda á sýslur, þar sem meira en helmingi fleiri menn eru í héraðsnefndunum einum saman en nemur sam- anlagðri atkvæðatölu Alþýðubandalagsins í viðkomandi sýslu við síð- ustu kosningar — og aðrar sýslur, þar sem fjórum sinnum fleiri menn hafa undirritað kröfu um brottför hersins og endurnýjun hlutleysis- yfirlýsingarinnar heldur en kusu Alþýðubandalagið við alþingiskosningar fyrir rúmu ári. Við slíkum staðreyndum eiga hernámsmenn ekkert svar. En til þess að klóra í bakkann segja þeir: hitt eru allt nytsamir sakleys- ingjar! Ekki er sú skýring síður vandræðaleg. Nytsamur sakleysingi á sína andstæðu: sekan ónytjung. Hægt er að leggja fram skjallegar sannanir fyrir því, að í sumum hreppum hafa tæp 90% íbúanna fyrir fáum dögum undirritað kröfu um afnám herstöðvanna. Samkvæmt einkunn hernáms- manna sjálfra er afgangurinn „sekir ónytjungar“, og í hópi þeirra leita þeir liðsmanna sinna. En jafnvel slik flokkun fær ekki staðizt, svo óhagstæð sem hún er þeim þó. Eins og kosningaúrslit hérlendis bera með sér, lætur tíundi hver maður alla jafna undir höfuð leggjast að taka afstöðu til al- mennra mála, og er ástæðulaust að stimpla þá sem það gera hemámssinna eða seka ónytjunga fyrir það. 48 T í ö i ii d i Þ i n g v a 11 a j u n d a r


Tíðindi Þingvallafundar

Year
1960
Language
Icelandic
Pages
56


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Tíðindi Þingvallafundar
http://baekur.is/bok/228591ef-ffd0-4ce7-afae-84c8aeb179db

Link to this page: (48) Page 48
http://baekur.is/bok/228591ef-ffd0-4ce7-afae-84c8aeb179db/0/48

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.