(12) Blaðsíða 10
Við viljum að verðbætur á laun verði reiknaðar í krónutölu en
ekki hlutfallslega eins og nú er.
Við viljum atvinnustefnu sem miðar að fullri atvinnu fyrir allt
vinnufært fólk í landinu og teljum að vænlegasta leiðin til þess sé
að efla smáiðnað til innanlandsnota og fullvinna hér útflutnings-
vörur okkar, fisk og landbúnaðarvörur.
Áform um nýtt og betra samfélag stoða þó lítt ef haldið verður
áfram á þeirri braut rányrkju og umhverfismengunar sem nú
ógnar öllu lífi á jörðinni. í stað þess að ganga stöðugt á auðlindir
jarðarinnar verðum við að koma á jafnvægi milli manns og nátt-
úru. Við viljum nýta auðlindir lands og sjávar á þann veg að ekki
verði gengið í berhögg við lögmál náttúrunnar eins og nú er gert
með ofnýtingu fiskistofna, ofbeit, fyrirhyggjulausri mannvirkja-
gerð og óhóflegri umferð um viðkvæm landssvæði. Við verðum
hvert og eitt að vera ábyrg fyrir umhverfisvemd og marka verður
ákveðna stefnu með heildstæðri löggjöf um umhverfismál og nýt-
ingu auðlinda.
FRIÐAR- OG UTANRÍKISMÁL
ísland er hluti af samfélagi þjóðanna og okkur ber að axla þá
ábyrgð sem því fylgir. í því samfélagi er gæðum jarðar misskipt og
réttlæti fótum troðið. íslendingum ber að taka afstöðu á alþjóða-
vettvangi gegn misrétti og kúgun í hvaða mynd sem er.
Við viljum að íslendingar veiti þá þróunaraðstoð sem þeim
ber samkvæmt samþykktum Sameinuðu þjóðanna og hagi ávallt
10