(9) Blaðsíða 7
Við viljum ekki breyta útvarpslögunum að því er tekur til
einkaréttar Ríkisútvarpsins til útsendinga en styðjum hugmyndir
um fleiri rásir, landshlutaútvarp og beinan aðgang hópa eða
félagssamtaka að ríkisfjöhniðlum.
í samræmi við hugmyndir okkar um valddreifingu viljum við
leggja niður flokkspólitísk ráð og stjómir á öllum sviðum menn-
ingar og lista.
EFNAHAGS- OG ATVINNUMÁL
í efnahagsmálum stöndum við nú frammi fyrir miklum og
bráðum vanda. Það er Ijóst að framundan er barátta ólíkra hags-
munahópa um leiðir út úr öngþveitinu. í þeirri baráttu stöndum
við misjafnt að vígi bæði hvað snertir áhrif og kjör. Við munum
þar fyrst og fremst standa vörð um kjör kvenna, fjölmennasta
láglaunahóps þessa lands.
Við vitum að viðteknar aðferðir við lausn efnahagsmála hafa
bitnað harðast á láglaunahópum. Við höfnum slíkum lausnum,
því þær leysa ekki vandann og nú er svo komið að hætta er á
atvinnuleysi og versnandi lífskjörum.
Við höfnum lausnum sem byggja á vinnuþrælkun sem for-
sendu þess að hægt sé að lifa í landinu. Við höfnum lausnum sem
fela í sér stórlega skert kjör launafólks og samdrátt í atvinnu. Við
höfnum lausnum í atvinnu- og efnahagsmálum sem byggjast á
rányrkju á landi og auðlindum. Auðlindir lands okkar eru fyrst og
fremst við sem byggjum þetta land, sú þekking og tæknikunnátta
sem við búum yfir, fiskimið okkar, gróður landsins, jarðvarmi og
fallvötn. Við viljum annars konar nýtingu á þessum auðlindum
okkar, þar sem annað verðmætamat en stundargróði og rányrkja
er stefnumótandi.
7