(13) Blaðsíða 11
11
aðeins náð með gagngerðri breytingu á þjóð-
fjelagsfyrirkomulagi því, sem nú rikir. Mættu
hinar drotnandi stjettir skjálfa fyrir bylt-
ingu jafnaðarmanna. Verkalýðurinn hefir
engu fyrir að týna öðru en fjötrum sínum,
en hann hefir heila veröld að vinna.
Öreigar allra landa sameinist.« (Korq-
munista-ávarpið).
Úti i heimi magnast deilurnar milli kúg-
aðra og kúgara. Ár frá ári vex djúpið á
milli stjettanna. Svör við kröfum verkalýðs-
ins eru hvítliðar og vjelbyssur. í Italíu hafa
hvítliðarnir undir forystu flokkssvikarans
Mussolini hrifsað völdin úr höndum þings-
ins og stjórnarinnar þar án laga pg rjettar.
Verkamenn eru drepnir á götum úti, hús
þeirra, prentsmiðjur og skrifstofur í ráns-
böndum. 1 Bretlandi ólgar undir. Hið víð-
lenda nýlenduriki skelfur sem lauftrje í