
(21) Page 17
sameina himin og jörð og á milli þeirra rifar í Eiríksjökul, Tunguna og Strút sem nú
hafa þokað inn á baksviðið. Hríslurnar taka á sig mannlegt útlit, hver með sínum
sterku persónueinkennum og mynda þokkafulla hrynjandi sem fylgir hljómfalli mál-
arans. Fjöllin eru ekki lengur blá, heldur fagurrauð og okkurgul og langir skuggarnir
sem trjágreinarnar kasta á rauðan svörðinn eru dimmfjólubláir og fullir af lífi og
pensilförin verða ofsafengin og efnismikil. Oft finnst mér sem Ásgrímur hafi að
Húsafelli komist í samband við þá málara sem hann kenndi mestan skyldleika við:
Cézanne og Van Gogh. Hin fleygu orð Cézannes væri vel hægt að leggja Ásgrími í
munn ,,Frammi fyrir náttúrunni öðlast ég dýpri skilning“. Báðir voru mjög háðir
sjónáhrifum, hvorugur þeirra gat skáldað í náttúruna eða málað það sem ekki vartil
staðar. Að Húsafelli fann Ásgrímur sitt Mont-Sainte-Victoire, hinn keilulaga Strút
sem hann málaði af mikilli ástríðu í yfir þrjá áratugi, líkt og um endurtekna trúarlega
athöfn væri að ræða.
Hann fylgdist með hringrás náttúrunnar með eftirvæntingu, til að sjá tilbrigði sem
hann hafði áður skynjað. Þannig hefur heimilisfólkið að Húsafelli sagt frá því, þegar
hann beið með tilhlökkun eftirgrænni rönd sem komfram í Eiríksjökli, þegar líðatók
á sumarið. Það var ekki fyrr en græna röndin kom fram að hann gat málað hana.
Myndir Ásgríms úr Húsafellsskógi frá fimmta áratugnum bera sterkt svipmót mynda
sem Van Gogh málaði af ávaxtatrjám í Arles árið 1888, svo og hefur Ásgrímur haft
vissa hliðsjón af myndum Van Goghs af L’Angloise-brúnni í Arles, þegar hann
málar brúna yfir Kiðá í Borgarfirði. í tveimur sjálfsmyndum Ásgríms er áberandi
hliðsjón af sjálfsmyndum þessara tveggja listamanna, sem hann fann til skyldleika
við, ekki aðeins innra með sér, heldur með því að standa í þeirra sporum þótt
umhverfi hans væri ólíkt svo og allar aðstæður. Burtséð frá sjálfsmyndum sínum var
Ásgrímur lítt gefinn fyrir að mála fólk, hann virðist ekki hafa haft áhuga á mann-
eskjunni sem listrænu viðfangsefni. Þær mannamyndir sem eftir hann liggja eru
vafalítið verkefni sem hann hefurtekið að sérvegnasamfélagslegra ytri aðstæðna.
Þær bera ekki með sér að hann hafi haft þörf til að skyggnast djúpt í manneskjuna, ef
undanskilin er mynd hans af Þórarni B. Þorlákssyni.
Tveir myndaflokkar sem Ásgrímur vann að allt frá fyrsta tug aldarinnar og fram á
síðustu ár eru eldgosa- og þjóðsagnamyndir. Að ytra formi virðast þessir tveir
myndaflokkar lítt skyldir, en tengjast efnislega, þar sem meginþema þeirra beggja
er flótti. Yfirgnæfandi meirihluti eldgosamyndanna sýna menn og dýr á flótta undan
17
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Front Flyleaf
(4) Front Flyleaf
(5) Page 1
(6) Page 2
(7) Page 3
(8) Page 4
(9) Page 5
(10) Page 6
(11) Page 7
(12) Page 8
(13) Page 9
(14) Page 10
(15) Page 11
(16) Page 12
(17) Page 13
(18) Page 14
(19) Page 15
(20) Page 16
(21) Page 17
(22) Page 18
(23) Page 19
(24) Page 20
(25) Page 21
(26) Page 22
(27) Page 23
(28) Page 24
(29) Page 25
(30) Page 26
(31) Page 27
(32) Page 28
(33) Page 29
(34) Page 30
(35) Page 31
(36) Page 32
(37) Page 33
(38) Page 34
(39) Page 35
(40) Page 36
(41) Page 37
(42) Page 38
(43) Page 39
(44) Page 40
(45) Page 41
(46) Page 42
(47) Page 43
(48) Page 44
(49) Page 45
(50) Page 46
(51) Page 47
(52) Page 48
(53) Page 49
(54) Page 50
(55) Page 51
(56) Page 52
(57) Page 53
(58) Page 54
(59) Page 55
(60) Page 56
(61) Page 57
(62) Page 58
(63) Page 59
(64) Page 60
(65) Page 61
(66) Page 62
(67) Page 63
(68) Page 64
(69) Page 65
(70) Page 66
(71) Page 67
(72) Page 68
(73) Page 69
(74) Page 70
(75) Page 71
(76) Page 72
(77) Page 73
(78) Page 74
(79) Page 75
(80) Page 76
(81) Page 77
(82) Page 78
(83) Page 79
(84) Page 80
(85) Page 81
(86) Page 82
(87) Page 83
(88) Page 84
(89) Page 85
(90) Page 86
(91) Page 87
(92) Page 88
(93) Rear Flyleaf
(94) Rear Flyleaf
(95) Back Cover
(96) Back Cover
(97) Scale
(98) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Front Flyleaf
(4) Front Flyleaf
(5) Page 1
(6) Page 2
(7) Page 3
(8) Page 4
(9) Page 5
(10) Page 6
(11) Page 7
(12) Page 8
(13) Page 9
(14) Page 10
(15) Page 11
(16) Page 12
(17) Page 13
(18) Page 14
(19) Page 15
(20) Page 16
(21) Page 17
(22) Page 18
(23) Page 19
(24) Page 20
(25) Page 21
(26) Page 22
(27) Page 23
(28) Page 24
(29) Page 25
(30) Page 26
(31) Page 27
(32) Page 28
(33) Page 29
(34) Page 30
(35) Page 31
(36) Page 32
(37) Page 33
(38) Page 34
(39) Page 35
(40) Page 36
(41) Page 37
(42) Page 38
(43) Page 39
(44) Page 40
(45) Page 41
(46) Page 42
(47) Page 43
(48) Page 44
(49) Page 45
(50) Page 46
(51) Page 47
(52) Page 48
(53) Page 49
(54) Page 50
(55) Page 51
(56) Page 52
(57) Page 53
(58) Page 54
(59) Page 55
(60) Page 56
(61) Page 57
(62) Page 58
(63) Page 59
(64) Page 60
(65) Page 61
(66) Page 62
(67) Page 63
(68) Page 64
(69) Page 65
(70) Page 66
(71) Page 67
(72) Page 68
(73) Page 69
(74) Page 70
(75) Page 71
(76) Page 72
(77) Page 73
(78) Page 74
(79) Page 75
(80) Page 76
(81) Page 77
(82) Page 78
(83) Page 79
(84) Page 80
(85) Page 81
(86) Page 82
(87) Page 83
(88) Page 84
(89) Page 85
(90) Page 86
(91) Page 87
(92) Page 88
(93) Rear Flyleaf
(94) Rear Flyleaf
(95) Back Cover
(96) Back Cover
(97) Scale
(98) Color Palette