loading/hleð
(27) Page 23 (27) Page 23
23 Sólfarsvindur Allir kannast við, að gegnum dyr frá köldu herbergi leggur kuldasúg við gólf, en þangað inn streymir hlýrra loft efst í dyr— unum. Má til dæmis sýna, hvernig kertaljós leggur undan þessum súg. Svipað þessu gerist, er sumarsólin hitar landið miklu meira en hafið. Þá dregur kuldasúg frá sjónum inn yfir ströndina. Það er hafgolan. Til þess að þetta verði þarf fyrst að myndast lægð yfir landinu, svonefnd hitalægð. En auk þess að soga til sin vindinn, sveigir hún hann rangsælis kringum sig eins og aðrar lægðir. Hafgolan blæs því rangsælis kringum landið og inn yfir það. Sterkust verður hafgolan upp úr hádeginu, þegar sólarhitinn hefur myndað lægðina yfir landinu. Með kvöldinu dregur úr henni, stundum snýst áttin þá jafnvel við, svo að hæg landgola verður sinni hluta nætur. Er þá landið orðið kaldara en sjórinn. Þetta er kallað sólfarsvindur. Hafgolan er aðeins í neðsta loftlaginu, nær sjaldan hærra upp en 1 km. Ofar streymir loftið frá landinu út yfir sjóinn. Landgolan nær yfirleitt ennþá lægra upp, varla meira en nokkur hundruð metra. Skylt hafgolu er uppstreymi með fjallahlíðum á sólheitum sumardögum í innsveitum. Þá er loftið við fjallshliðina hlýrra en loftið í sömu hæð yfir dalnum og leitar því upp eftir hlíðun- um, en einnig inn til dalabotnanna, inn að hálendinu. Af þessari ástæðu myndast bólstraský þá helzt yfir fjöllum. A nóttunni snýst þetta við, einkum haust og vor. Þá streym— ir kalt loft, fjallgola, niður með fjallahliðum og stöðvast ekki fyrr en i lægðum og á láglendi. Þar er þá hættast við næturþoku vegna kælingar og rakaþéttunar, sem kuldanum fylgir. L andgo/a
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page [1]
(4) Page [2]
(5) Page 1
(6) Page 2
(7) Page 3
(8) Page 4
(9) Page 5
(10) Page 6
(11) Page 7
(12) Page 8
(13) Page 9
(14) Page 10
(15) Page 11
(16) Page 12
(17) Page 13
(18) Page 14
(19) Page 15
(20) Page 16
(21) Page 17
(22) Page 18
(23) Page 19
(24) Page 20
(25) Page 21
(26) Page 22
(27) Page 23
(28) Page 24
(29) Page 25
(30) Page 26
(31) Page 27
(32) Page 28
(33) Page 29
(34) Page 30
(35) Page 31
(36) Page 32
(37) Page 33
(38) Page 34
(39) Page 35
(40) Page 36
(41) Page 37
(42) Page 38
(43) Page 39
(44) Page 40
(45) Page 41
(46) Page 42
(47) Page 43
(48) Page 44
(49) Page 45
(50) Page 46
(51) Page 47
(52) Page 48
(53) Page 49
(54) Page 50
(55) Page 51
(56) Page 52
(57) Page 53
(58) Page 54
(59) Page 55
(60) Page 56
(61) Page 57
(62) Page 58
(63) Page 59
(64) Page 60
(65) Page 61
(66) Page 62
(67) Page 63
(68) Page 64
(69) Page 65
(70) Page 66
(71) Page 67
(72) Page 68
(73) Page 69
(74) Page 70
(75) Page 71
(76) Page 72
(77) Page 73
(78) Page 74
(79) Page 75
(80) Page 76
(81) Page 77
(82) Page 78
(83) Page 79
(84) Page 80
(85) Page 81
(86) Page 82
(87) Page 83
(88) Page 84
(89) Page 85
(90) Back Cover
(91) Back Cover
(92) Scale
(93) Color Palette


Flugveðurfræði

Year
1961
Language
Icelandic
Pages
91


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Flugveðurfræði
https://baekur.is/bok/694e5f3b-a16a-4cd6-99b2-70cc7dc39c78

Link to this page: (27) Page 23
https://baekur.is/bok/694e5f3b-a16a-4cd6-99b2-70cc7dc39c78/0/27

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.