loading/hleð
(14) Page 12 (14) Page 12
Æskulýðsmál Tvískinnungs gætir oft meðal fullorðinna í garð unglinga. Þeir eru meðhöndlaðir sem börn. Hlut- verk þeirra í þjóðfélaginu er óljóst. Þeim er ekki treyst til að bera ábyrgð en þó gert að standa skil gerða sinna þegar til árekstra kemur milli þeirra og samfélagsins. Mikil vinnuþrælkun og slæmur aðbúnaður fjöl- skyldna kemur ekki síst niður á unglingum. Við getum ekki litið framhjá þeirri staðreynd að fjöldi þeirra á í miklum erfiðleikum af persónulegum og félagslegum ástæðum. Kvennalistinn vill vekja sérstaka athygli á að sívaxandi fjöldi barna og unglinga neytir vímuefna. Það er sjálfsögð skylda samfélagsins að veita unglingum í vanda raunhæfa aðstoð. Leggja ber megináherslu á fyrirbyggjandi starf, ekki einungis skapandi tóm- stundastarf, heldur einnig markvissa aðstoð við börn og unglinga sem eru í vanda stödd. Með því er stuðlað að farsælu lífi einstaklingsins og oft spöruð dýr úrræði seinna meir. Kvennalistinn vill: 9 að æskulýðsstarf í landinu verði endurskoðað í þeim tilgangi að búa unglingum betri aðstöðu til skapandi tómstundastarfs, líkamsræktar og menningarlífs, 9 að sem víðast verði komið upp félagsmiðstöðvum þar sem unglingar taka þátt í að móta starf og rekstur þeirra frá upphafi, 9 að stúlkum standi til boða að starfa í sérstökum hópum í félagsmið- stöðvum og tómstundastarfi í skólum, sem hafa það að markmiði að auka vitund þeirra um stöðu sína, 9 að þeir sem vinna með unglingum sameinist um að móta markvissa stefnu í baráttunni gegn vímuefnum þannig að einstakar aðgerðir skili árangri. 12


Stefnuskrá í landsmálum 1987

Year
1987
Language
Icelandic
Pages
52


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Stefnuskrá í landsmálum 1987
http://baekur.is/bok/66614bda-3f4f-411a-a471-edbb22aada63

Link to this page: (14) Page 12
http://baekur.is/bok/66614bda-3f4f-411a-a471-edbb22aada63/0/14

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.