loading/hleð
(22) Page 20 (22) Page 20
Húsnæðismál Ein aðalástæða vinnuþrælkunar hér á landi er hve fólki reynist erfitt að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Lág laun og háir vextir valda því að launafólk hefur varla lengur ráð á lágmarkshús- næði. Húsnæðislöggjöfin tekur á engan hátt tillit til fjölskylduaðstæðna. Allir fá jafnhátt lán hvort sem þeir eru með stóra eða litla fjölskyldu, hvort sem þeir þurfa að minnka við sig eða stækka. Það er ekki bara í lánakerfinu sem fjölskyldan verður útundan. Framlög ríkisvaldsins í gegnum skatta- kerfið eru viðamikil. Samkvæmt nýju skattalögun- um fá allir sama skattaafslátt vegna öflunar íbúðarhúsnæðis en aðeins í fyrsta sinn. Barnafjöldi og þar með þörf fyrir meira húsrými hefur engin áhrif. Þeir sem hvorki geta né vilja leggja á sig þá vinnuþrælkun sem húsnæðisbasl- inu er samfara eða geta ekki þrátt fyrir vinnu myrkra á milli náð endum saman, hafa í ekkert hús að venda. Aðeins lítill hluti þeirra sem sækja um í verka- mannabústöðum fær þar íbúð. Við mörgum fjölskyldum blasir ekkert annað en upplausn og vergangur. Mikill skortur er á leiguhúsnæði. Víða úti á landi er þörfin fyrir leiguhúsnæði svo mikil að það stendur eðlilegu atvinnulífi fyrir þrifum. Nauðsynlegt er að leiguíbúðir séu fyrir hendi til að fólki sé kleift að setjast að annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu. Stærsti hluti þess fjár sem Húsnæðisstofnun ríkisins hef- ur til ráðstöfunar rennur til þéttbýlissvæðanna á suðvestur horninu. Bygging leiguíbúða á öðrum stöðum á landinu myndi skila meira fé til landsbyggðarinn- ar. Lánsfé húsnæðiskerfisins kemur að stærstum hluta frá lífeyrissjóðunum. Framlag ríkisins til þess er í engu samræmi við það sem nauðsynlegt er til að fullnægja lágmarksþörf fyrir íbúðarhúsnæði í landinu. Framlög til félagslegra íbúðabygginga og leiguíbúða hafa farið stöðugt lækkandi. Verið er að ýta vand- anum til framtíðarinnar. 20


Stefnuskrá í landsmálum 1987

Year
1987
Language
Icelandic
Pages
52


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Stefnuskrá í landsmálum 1987
http://baekur.is/bok/66614bda-3f4f-411a-a471-edbb22aada63

Link to this page: (22) Page 20
http://baekur.is/bok/66614bda-3f4f-411a-a471-edbb22aada63/0/22

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.