
(3) Page 1
Stefnuskrá Kvennalistans
í alþingiskosningum 1987
Markmið Kvennalistans er að gera viðhorf,
reynslu og menningu kvenna að stefnumótandi
afli í samfélaginu ekki síður en reynslu, menn-
ingu og viðhorf karla. Kvennalistinn vill varðveita
og þróa hið jákvæða í lífssýn kvenna og nýta það
í þágu samfélagsins alls. Kvennalistinn vill
breyta samfélaginu og setja virðingu fyrir lífi og
samábyrgð í öndvegi.
Konum er tamt að hugsa um þarfir annarra. Þær
hafa kynslóð fram af kynslóð borið ábyrgð á
heimilum, bömum, öldmðum og sjúkum. Vegna
þessarra starfa sinna sem og uppeldis búa konur yfir annarri reynslu en karlar.
Reynsla kvenna leiðir af sér annaö verðmætamat, önnur lífsgildi en þau sem
ríkja í veröld karla. Þekking og viðhorf kvenna koma þó lítt við sögu þar sem
ákvarðanir eru teknar, samfélaginu til ómælds tjóns.
Markmið Kvennalistans verða ekki að veruleika nema að aðstæður og kjör
kvenna batni og áhrif þeirra á stjórn samfélagsins aukist. Enn sem fyrr vinna
konur láglaunastörfin á vinnumarkaðnum og hafa minni möguleika þar en
karlar. Ólaunuð störf á heimilum og umönnun barna er á ábyrgð kvenna og frí-
tími þeirra er af skornum skammti. Allt sem getur orðið til að bæta stöðu kvenna
skilar sér í réttlátara og betra þjóðfélagi.
Framboð til Alþingis er ein þeirra leiða sem við viljum fara til að auka áhrif
kvenna og bæta stöðu þeirra. Með því viljum við tryggja að kvenfrelsisstefna eigi
sér málsvara á Alþingi og konur eigi þar fulltrúa sem gæta hagsmuna þeirra.
Kjaraskerðingar og húsnæðisstefna undangenginna ára hafa kippt fótunum
undan fjölmörgum heimilum í landinu og leitt af sér bæði upplausn og óham-
ingju. Þetta hefur komið verst niður á þeim sem hafa veikasta stöðu og minnst
vald en í þeim hópi eru konur fjölmennastar. Ef flóðgáttir frjálshyggjunnar ná að
opnast er sú litla samhjálp sem til boða stendur í hættu. Samhjálp sem byggð var
upp með þrotlausri baráttu fyrri kynslóða og byggir á þeirri hugsjón, að jafna
skuli aðstæður fólks.
Kvennalistinn á Alþingi hlýtur því að standa vörð um þessa ávinninga og
leggja sitt af mörkum til að ná fram nýjum.
1
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Back Cover
(52) Back Cover
(53) Scale
(54) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Back Cover
(52) Back Cover
(53) Scale
(54) Color Palette