(6) Page 4
Launamál
Konur bera nú uppi að miklu eða öllu leyti fjöl-
margar starfsgreinar. Par er fyrst og fremst um að
ræða störf sem lúta að umönnun, uppeldi og
fræðslu svo og fiskvinnslu. Mörg þessara starfa
unnu konur áður inná heimilunum en nú hafa
þau færst út í atvinnulífið þar sem þau eru stór-
lega vanmetin. Konur hafa haslað sér völl á öllum
sviðum atvinnulífsins, en þær hafa hins vegar átt
lítinn þátt í mótun þess — enda aldrei spurðar.
Virðingarleysið gagnvart störfum kvenna kemur
skýrt fram í því launamisrétti sem viðgengst á
vinnumarkaðnum. Konur hafa árum saman barist fyrir mannsæmandi launum
og launajafnrétti, þær hafa gripið til ýmissa ráða; aflað sér menntunar, unnið
langan vinnudag, látið afkastahvetjandi launakerfi yfir sig ganga, gripið til hóp-
uppsagna og verkfalla og svo mætti lengi telja en allt kemur fyrir ekki, þær lenda
alltaf neðst.
Setning laga um jafnrétti kynjanna árið 1976 hefur engu breytt um launamis-
réttið sem konur búa við. Á síðustu árum hefur launabilið enn aukist og árið
1985 höfðu karlar 59% hærri laun á ársverk en konur. Það er engin lausn að
beina konum í karlastörf, heldur ber að meta störf kvenna hvar sem þau eru
unnin.
Alltof margir og þá sérstaklega konur standa andspænis því í dag að lifa á
launum sem opinberlega er viðurkennt að dugi ekki til framfærslu. Jafnvel á
heimilum þar sem eru tvær fyrirvinnur, reynist almennu launafólki erfitt að ná
endum saman. Barnmargar fjölskyldur og fjölskyldur einstæðra mæðra verða
harðast úti í þeirri launastefnu sem hér ríkir.
Laun fólks, jafnt kvenna sem karla, eiga að miðast við vinnuframlag þeirra
sem einstaklinga en ekki hjúskaparstöðu. Matið á vinnuframlaginu verður að
breytast ef laun kvenna eiga að verða sambærileg við laun karla. Vanmatið á
kvennastörfunum veldur því að konur fá ekki það sem þeim ber fyrir störf sín
sem eru í senn vandasöm og ábyrgðarmikil.
Hingað til hafa karlar lagt mat á störf kvenna og samið um smánarlaun þeim
til handa í kjarasamningum. Eina svar kvenna við því óréttlæti sem viðgengst í
launamálum hér á landi er að taka málin í sínar hendur.
4
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Back Cover
(52) Back Cover
(53) Scale
(54) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Back Cover
(52) Back Cover
(53) Scale
(54) Color Palette