loading/hleð
(33) Page 29 (33) Page 29
29 III. HJÓNAEFNABRJEF. Elsku hjartað mitt! Fórnfúsa ástin þín veldur mjer ósegjanlegrar sælu, og jeg get ekki með orðum lýst, hve innilega glöð jeg er, þegar jeg hugsa til þess, að við eigum að verða hjón. Trúðu því, ástvinur minn, að hjarta mitt hrærist eingöngu vegna þín, og að sá eldur, sem i því brennur, er aðoins þín vegna til. Ast þin er líf mitt, án hennar mundi jeg vera ógæfusamasta manneskjan á jarðríki. þin til dauðans trúlynda L á r a. Hjartans ástin mín! Hvernig á jeg að geta túlkað tilfinningar þær, er bærast í hjarta mínu í þinn garð? Ó, elsku Elín, ef jeg aðeins hefði orðin á mínu valdi, mundi jeg geta sagt þjer, hve óendanlega hjartfólgin þú ert mjer, og hve djúp ást mín til þin er. Ljúfasti engillinn minn, augnatillit þitt er mjer eins og ljómi sólarinnar, og orð af vörum þínum er sem fegursti hljóðfærasláttur í eyrum mínum. Elskaðu mig og haltu áfram að vera mín. þinn innilega elskandi Páll.


Ástabrjef

Author
Year
1923
Language
Icelandic
Pages
40


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Ástabrjef
https://baekur.is/bok/44098f83-a3de-47f1-b3dd-bf398fcffb4d

Link to this page: (33) Page 29
https://baekur.is/bok/44098f83-a3de-47f1-b3dd-bf398fcffb4d/0/33

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.