loading/hleð
(32) Page 26 (32) Page 26
26 HEITING Eftir sögn aðila. A. og N. nefnum vér hjón er lengi bjuggu að Tannanesi í önundarfirði. Þar var þá tvíbýli, eins og enn er (1909). Konan, sem bjó móti þeim hét F., en bónda hennar nefnum vér eigi. F. var mjög áköf. í skapi. F. átti hest, sem henni þótti mjög vænt um, og mátti bóndi hennar eigi nota hestinn án leyfis henn- ar, og væri hesturinn notaður til áburðar, sem sjaldan kom fyrir, ákvað kerling þyngd bagganna, Hesturinn var mjög túnsækinn, því að hann var góðu vanur. Stóð hann oft í túni A, einkum fyrir framan lambhúsið, því þar var bezt sprottið. Eitt vor, er hæzt stóð gróandinn, er hesturinn þarna sem oftar. N. kemur þá auga á hann; tekur hrossabrest í hönd sér og kallar á tvo hunda til fylgdar við sig. Hyggst hún að hrekkja hestinn svo, að hann komi eigi strax aftur. Þegar hún er komin mjög nálægt hestinum sprettir F. snögglega hrossabrestinum, og jafnframt þjóta hundarnir að hestinum með gjammi miklu. Verður hestinum mjög felmt við aðgang þennan og staðnæmist ekki fyrr en í svokölluðum Kúhólma. F. hafði horft á þetta og varð eigi um. Hún geng- ur nú til N. og kastar þungum orðum til hennar, og jókst það sífellt. Þegar þær voru komnar heim undir neðri bæinn, þar sem F. átti heima, segir hún að lokum: „Ég skal jafna á þér, N., annaðhvort lifandi


Vestfirzkar þjóðsögur

Year
1954
Language
Icelandic
Volumes
5
Pages
758


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Vestfirzkar þjóðsögur
http://baekur.is/bok/83c6030b-aa26-4bf0-bf1d-a180db6b18ee

Link to this volume: 1. b.
http://baekur.is/bok/83c6030b-aa26-4bf0-bf1d-a180db6b18ee/1

Link to this page: (32) Page 26
http://baekur.is/bok/83c6030b-aa26-4bf0-bf1d-a180db6b18ee/1/32

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.