(25) Blaðsíða 25
Þessi mynd er ekki frá því ári sem hér um ræðir.
Gullið og asninn á Kirkjuþingi
AKirkjuþingi þjóðkirkjustofnunarinnar sem
haldið var í október árið 2001 voru málefni
fríkirkna rædd og sá möguleiki að lúterskar
fríkirkjur geti starfað innan þjóðkirkjunnar.
Málið var þannig kynnt fyrir fjölmiðlum að verið
væri að gera fríkirkjum gott tilboð sem þær gætu
ekki hafnað. Ekki var þetta gert að beiðni fríkirkn-
anna enda kom á daginn að það voru ekki hagsmun-
ir fríkirknanna sem voru hafðir að leiðarljósi.
Umræður kirkjuþingsmanna voru mjög upp-
lýsandi um það hvaða ástæður og hvatir lágu að
baki.
Tilgangurinn var sá að koma í veg fyrir að fríkirkj-
urnar gætu á eigin forsendum leitað í þá digru og
miklu sjóði sem liggja á milli ríkis og kirkjustofnun-
arinnar og hún ein nýtur góðs af.
í fundargerð kirkjuþings sem birt var vef kirkjunn-
ar á netinu má finna eftirfarandi orð flutningsmanns
tillögunnar sr. Halldórs Gunnarssonar:
„...að ég hefði hafi í huga, að ef þessir 11. þúsund
meðlimir fríkirknanna kæmu til þjóðkirkjunnar þá mundi
ávinningur þjóðkirkjunnar vera tveir starfsmenn. Auðvit-
að hafði ég það í huga. Og auðvitað hef ég líka í huga
þann ávinning sem mundi verða með því að þá mundi
bætast á sóknargjöldin 18.2% sem færi í Jöfnunarsjóð,
sem er ekkert lítið.
Vissulega hafði ég það í huga. ...En þessi tillaga hér
er líka flutt vegna þess að mér er kunnugt um það að
menn skoða mjög, fríkirkjusöfnuðir og aðrir söfnuðir, að-
ild að Jöfnunarsjóðnum eða sambærilega aðild og þetta
sé í rauninni verðandi dómsmál.
Um leið og við mundum samþykkja þetta og gefa frí-
kirkjusöfnuðunum möguleika á aðgangi að Jöfnunar-
sjóðnum þá erum við í rauninni að girða fyrir að það sé
sagt að þessir söfnuðir hafi ekki möguleika til þess að
koma að Jöfnunarsjóðnum. Þannig að ég hefði fremur
kosið að þurfa ekki að segja þetta hér á þinginu en mér
finnst þetta vera eðlilegt í umfjöllun hjá nefndinni, en
vegna þess að sr. Geir kom beint að þessari kviku þá er
ekkert um annað að gera en að ræða það... sjóðir kirkj-
unnar, Jöfnunarsjóður, Kristnisjóður og Kirkjumálasjóður,
þessir sjóðir byggja allir á okkar kirkjueignum."
Hugmyndin var að kirkjustofnunin sjálf fengi enn
meira fé frá ríki við inngöngu fríkirknanna. En í um-
ræðunum kom einnig greinilega í Ijós að eftir að
búið væri að lokka fríkirkjurnar inn í þjóðkirkjuna og
búið væri að læsa dyrunum að baki þeim, að þá ættu
fríkirkjurnar alls ekki að fá að njóta góðs af, þegar
inn væri komið. Markmiðið var greinilega það að frí-
kirkjurnar misstu sérstöðu sína og aðdráttarafl. Og
ef dæmið gengi ekki upp nógu greiðlega „þá væri
höfðað til hvers og eins meðlims fríkirkju að skrá sig inn
í þjóðkirkjuna á ný“.
Ummæli sumra ríkislaunaðra presta og guðfræð-
inga á kirkjuþingi voru mjög athygliverð fýrir allt ís-
lenskt kirkjufólk. Þar var talað um kristilegt grasrót-
arstarf af mikilli fýrirlitningu og háði.
Frjálsum trúfélögum var líkt við glataða soninn
sem hafði villst af leið. Ríkislaunaðir kirkjuþings-
mennirnir höfðu miklar efasemdir um að hleypa frí-
kirkjum að „sínum kirkjueignum“. Fríkirkjufólki
og/eða fríkirkjufyrirkomulaginu var líkt við asna sem
stendur utan við borgarmúrana. Kirkjuþingsmenn-
irnir ræddu sín á milli hvernig hægt væri að lokka
asnann inn fyrir borgarmúrinn, ná gullinu af baki hans
en senda asnann síðan aftur út fýrir borgarmúrinn
þar sem hann ætti helst heima.
Nú virðist enginn af þeim æðstu mönnum þjóð-
kirkjunnar sem þar voru og tóku þátt í umræðunni
hafa fundið neitt að þessum líkingum, fundist þær
ósæmilegar eða ómaklegar.
Óneitanlega hvarflar að manni sú hugsun að þetta
kirkjuþing hafi í raun farið fram á miðöldum, löngu
fýrir siðbreytingu.
Að minnsta kosti er það nokkuð víst að sá fulltrúi
miðaldakirkjunnar, prófessor Ech, sem Marteinn Lút-
er glímdi hvað harðast við í baráttu sinni fyrir sið-
breytingu, hefði verið afar stoltur af svona stofn-
unarútspili sem tillagan er. Ratzinger í Vatíkaninu í
Róm gefur því eflaust einnig háa einkunn.
Yfirtaka í krafti ríkisfjármagns og að-
stöðumunar?
í núgildandi samningi á milli ríkis og þjóðkirkju-
stofnunarinnar er að finna ákvæði sem hvetja til út-
þenslu þjóðkirkjustofnunarinnar, að því er virðist á
kostnað annarra trúfélaga. Þar eru á ferðinni hvetj-
andi ákvæði um fleiri stöðugildi frá ríki til handa
þjóðkirkjustofnuninni ef starfsmönnum hennar tekst
að fjölga skráðum meðlimum ríkiskirkjunnar.
Hér ber að hafa tvennt í huga. Annars vegar að
þjóðkirkjustofnunin fær árlega í hendur frá hinu op-
inbera nokkuð ýtarlegar upplýsingar um meðlimi
annarra trúfélaga, búsetu, fjölskyldustærð, aldur og
fl., nokkuð sem önnur trúfélög fá ekki í hendur. í Ijós
hefur komið að þær upplýsingar hafa nýst vel í „land-
vinningum" þjóðkirkjustofnunarinnar á hendur
frjálsum trúfélögum.
Hins vegar er hætt við að slíkt ákvæði stríði gegn
almennum hugmyndum um jafnræði trúfélaga og
skapi óheilbrigða afstöðu presta þjóðkirkjunnar í
garð annarra kristinna trúfélaga. Hætt er við að
sumum prestum þjóðkirkjunnar hætti til að líta á
meðlimi frjálsra trúfélaga sem einskonar „villibráð til
veiða, utan borgarmúra“. H.M.J.
Fríkirkjan í Reykjavík
25
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Kvarði
(34) Litaspjald
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Kvarði
(34) Litaspjald