loading/hleð
(27) Blaðsíða 27 (27) Blaðsíða 27
Kirkjan í óvenjulegum búningi, hugsanlega um 1930 Talið er að Eiríkur K. Jónsson, húsa- og listmálari hafi málað kirkjuna og einnig myndverkið fyrir ofan kórinn. En myndir hans hafa prýtt ýmis heimili og stofnanir hér í borg.Við breytingar á kirkjunni um og eftir síðari heimstyrjöld var kirkjan máluð að nýju og var þá málað yfir myndverkið. Líklegast hefur það þá þegar verið farin að skemmast eitthvað. Síðan var það árið 1998 I tilefni af aldar afmæli trúfélagsins að gerðar voru breytingar á kirkjunni. Komu þá þessi myndbrot aftur í Ijós þegar verið var að skafa af gömul málningarlög í undirbúningi fyrir nýja málningu, sjá mynd á síðu 22. Áhugi er innan safnaðarins að reyna að koma megin hluta myndarinnar ofan við kórinn í samt horf og áður. En það er kostnaðarsamt bæði hvað varðar peninga og tíma. Á síðastliðnu ári sótti söfnuðurinn um fram- lag úr Kristnihátíðarsjóði vegna þessa verkefnis en þeirri umsókn var hafnað. Vegir Guðs eru órannsakanlegir g er búinn að vera meðlimur Fríkirkjunn- ar í Reykjavík frá því að ég man eftir mér. Ég fór sjaldan í guðsþjónustu sem krakki og vissi voða lítið um allt það sem gerist í kirkj- unni. Svo óx maður úr grasi og byrjaði að und- irbúa ferminguna. ( Fríkirkjunni er fermingar- starfið alveg með eindæmum gott og ég verð að segja, þó að ég hafi nú bara fermst einu sinni, að það var frábært að kynnast þessu góða fólki sem stendur að fermingarfræðslunni og leggur mikið á sig til að koma boðskapnum til skila. Ég persónulega fékk aðra skoðun á prestum, þeir geta líka stundað íþróttir en kannski er það bara séra Hjörtur Magni sem lætur svona villi- mannslega í íþróttum. Niðurstaðan er sú að það er frábært andrúmsloft og góður andi meðal þeirra sem koma að starfi Fríkirkjunnar og var fermingarfræðslan alveg frábær, mikið hlegið en alvara í senn. Ég stunda nú nám við Tónlistarskóla Seltjarnarness á trompet og get aðeins bjargað mér á gítar.Vegna þess var ég fenginn til að spila í barnamessum annan hvern sunnudag nú í vetur. í framhaldi af fermingar- fræðslunni er maður því farinn að spila á gítar í barnamessum, en eins og gamalt máltæki segir: „Vegir Guðs eru órannsakanlegir". Ari Bragi Kárason 15 ára Fríkirkjan í Reykjavík 27


Fríkirkjan í Reykjavík

Ár
2004
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Fríkirkjan í Reykjavík
http://baekur.is/bok/f4b3a6a4-737c-4f5c-8fd7-3a4f60be73d8

Tengja á þessa síðu: (27) Blaðsíða 27
http://baekur.is/bok/f4b3a6a4-737c-4f5c-8fd7-3a4f60be73d8/0/27

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.