loading/hleð
(20) Blaðsíða 20 (20) Blaðsíða 20
ÓÞEKKTUR HÖFUNDUR 19 EFTIRMYND EFTIR EINNI AF SJÁLFSMYNDUM REM- BRANTS. Olía, léreft: 81X65. Eftirmynd þessi er gerð eftir einni frægustu sjálfsmynd Rem- brants, sem er geymd í Louvre, máluð 1637. Er hún nákvæm- lega jafn stór og mun mjög líklega vera gerð á 18. öld, senni- lega í Hollandi. Myndin er úr safni Lady Cobham í Reading. ENSKI SKÓLINN LELY (1618—1680) Pieter van der Faes, betur þekktur undir nafninu Sir Peter Lely, var fæddur í Soest í Westfalen 1618, sonur herliðsforingja. Hann lagði snemma út á listamannsbrautina og nam fyrst í Haarlem í Hollandi um tveggja ára skeið, en fluttist árið 1641 til Englands. Van Dyek, hirðmálari Karls I., hafði látizt árið áður, en áhrif hans voru enn mjög sterk og stíll hans í tízku, sérstaklega á meðal háaðalsins, svo það er varla að furða, þótt Lely fari fljótt að stæla tækni hans. Við brúðkaup Maríu prinsessu og Vilhjálms af Orange 1643, gerðist hann hirðmálari og málaði m. a. myndir af brúðhjónun- um og Karli I. Meðan á valdatíð Cromwells stóð, fór vegur hans nokkuð lækkandi, en þó eru til mvndir, sem hann málaði af C-romwell sjálfum. Við endurreisnina útnefndi Karl II. hann fyrsta hirðmálara sinn og aðlaði hann 1679. Var frægð hans mjög mikil, og varla til sá enskur samtímamaður, sem einhvers mátti sín, að hann sæti ekki fyrir hjá honum. Myndir Lely’s eru allar mjög fínlegar og litborðið næmt. Þótt mannlýsingarnar í þeim séu fremur tilþrifalausar og alls staðar megi sjá sterkt svipmót með Van Dyek, er hann samt jafnan talinn á meðal fremstu portrett-málara enska skólans. 20


Nokkur gömul málverk

Ár
1949
Tungumál
Íslenska
Blaðsíður
32


Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þessa bók, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þessa bók: Nokkur gömul málverk
https://baekur.is/bok/61855dc1-6e01-4b0a-9fb8-05b3e94a937e

Tengja á þessa síðu: (20) Blaðsíða 20
https://baekur.is/bok/61855dc1-6e01-4b0a-9fb8-05b3e94a937e/0/20

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Bækur.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.