loading/hleð
(21) Page 17 (21) Page 17
17 sínum að Hvammi í Ilvammssveit, og ólst þar upp hjá þeim til fullorðins ára. Síðan fór hún til móð- urbróður síns Ásmundar prests Pálssonar á Auð- kúlu í Svínadal, og var þar bústýra hans í 19 ár, þangað til hann dó 1798. Fór hún þá vestur til fóður síns og giptist Jóni presli Gíslasyni (1799). Höfðu þau þá lifað saman í ástríku hjónabandi í rúm 40 ár. Hún var orðlögð kona fyrir gáfur, guðhræðslu og góðsemd við alla, enda var hún harmdauði, því henni unnu allir hugástum sem til hennar þekktu. Stjúpbörnum sínum var hún bezta móðir, og sýndi ekki einúngis þeim, heldur og einnig börnum þeirra óþreytanlega ást og umhyggju. Engan gat hún auman litið án líknar, og því hneigðist ekki hugur hennar til að safna auðæfum þessa heims, enda brast hana ekki ráðdeild og hyggilega sparsemi til að verja efnum sínum, til þess að geta látið sem mest gott af sér leiða. þannig var þá sira Jón orðinn ekkjumaður i annað sinn. Nú var hann búinn að vera í Hvainmi undir 40 ár, og hafði unað þar vel hag sinum, en samt sem áður festi hann þar ekki yndi lengur, og sókti á öndverðum vetri 1840 um brauð, er losnaði á Vesturlandi, sem honum þó ekki hlotnaðist; sókti hann síðan um Breiðabólstað á Skógarströnd, sem honum var veittur 23. Januarmán. 1841. Að vísu furðaði margan á því, að hann þannig á gamals aldri skyldi rífa sig upp frá Hvammi; en 2


Æfisaga Jóns Gíslasonar

Year
1860
Language
Icelandic
Keyword
Pages
40


Direct Links

If you want to link to this book, please use these links:

Link to this book: Æfisaga Jóns Gíslasonar
http://baekur.is/bok/4bc27a27-6832-42df-bcb5-fbb0c832f5ac

Link to this page: (21) Page 17
http://baekur.is/bok/4bc27a27-6832-42df-bcb5-fbb0c832f5ac/0/21

Please do not link directly to images or PDFs on Bækur.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.