
(29) Blaðsíða 29
25 ára afmælisrit Sómasamtakanna
sjaldgæft að einhver þessara tauga séu
skemmdar í garnapokaaðgerðum eða í
innan við 5% aðgerða.
Fylgikvillar eftir ileostómíur
lleostómíur eru ekki án fylgikvilla en þeir
fylgikvillar eru hættuminni og yfirleitt
hægt að lagfæra þá. Húðvandamál eru
algeng í kringum ileostómíur. Húðin í
kringum stómíurnar getur dregist inn,
stómían sjálf getur dregist inn, það getur
orðið þrenging í stómíunni og það getur
myndast kviðslit meðfram stómíunni.
Alvarlegasti fylgikvilli stómíunnar virðist
vera upplifun sjúklingsins á breyttri
líkamsímynd og jafnvel þunglyndis-
einkenni sem eru algeng meðal þeirra
sem hafa stómíu. Þrátt fyrir þessi
óþægindi af stómíunni sýna nýlegar
rannsóknir að lífsgæði sjúklinga með
stómiu eru sambærileg við lífsgæði þeirra
sem fengu garnapoka.
Reynslan á íslandi
Það hafa verið gerðar 33 garnapoka-
aðgerðir á s.l. 10 árum hér í Reykjavík.
Af þessum innri garnapokum hafa 4 verið
fjarlægðir, þrír vegna fistla og einn vegna
sýkingar í pokanum (pouchitis). Það
lak tenging hjá 5 sjúklingum og þurftu
þeir að fara í aðra aðgerð vegna þess,
það var þrenging í tengingunni sem
þurfti að víkka út hjá 9 og 2 hafa fengið
sýkingu í pokann (pouchitis). Hjá öðrum
sjúklingum hefur gengið vel. Tæmingar
eru 4-6 sinnum á sólarhring og ca. einu
sinni á nóttu. Mataræði er það sama og
hjá þeim sem hafa ileostómíu. Flestir
nota Imodium til að þykkja hægðirnar.
Að lokum
Framfarir í skurðlækningum vegna sára-
ristilbólgu eru ekki aðallega fólgnar í því
að finna nýjar aðgerðir, þær eru einnig
fólgnar í framförum í notkun þekktra
aðgerða. Með aukinni reynslu í vali
sjúklinga til aðgerða og reynslu í að gera
aðgerðirnar hefur fylgikvillum fækkað.
Það er mikilvægt fyrir sjúklinga með
sáraristilbólgu sem gætu þurft að fara
í aðgerð að þeir afli sér upplýsinga um
þá meðferðarmöguleika sem eru fyrir
hendi.
Þeir geta leitað til skurðlækna sem
gera aðgerðir á ristli og endaþarmi. Það
eru einnig margar heimasíður til með
upplýsingum um sjúkdóminn og læt ég
fylga með slóðir á tvær þeirra.
www.j-pouch.org
www. ostomates. org
Kveðja frá Öryrkjabandalagi íslands
Stómasamtökin 25 ára - glæsilegt starf
Stómasamtök íslands fengu aðild
að Öryrkjabandalagi íslands á
aðalfundi 2004. Formleg samleið
þessara félaga-samtaka er ekki
löng. í umræðu um umsókn
samtakanna innan ÖBÍ á sínum
tíma man ég að eftir því var tekið
hversu vel úr garði umsóknin var
gjörð, skilmerkileg og markviss.
Sjálfur þekkti ég ekki mikið til
Stómasamtakanna, veit ekki mikið
enn, en með aukinni þekkingu
er Ijóst í mínum huga að hún var
vitnisburður um markvisst og
kröftugt starf.
Þegar Stómasamtökin ber á góma
og umræðan nær mínum eyrum er
oftast fjallað um ágæti heimsóknar-
og stuðningsþjónustu félagsins.
Mikilvægi þessarar þjónustu verður
seint ofmetið og má ekki meta í
öðru Ijósi en þeirra sem njóta. Aðrir
eiga erfitt með að setja sig í þeirra
spor. Heimsókn samtakanna er
oftar en ekki upphaf á sókn og betra
lífi.
Að greinast með sjúkdóm, eða
verða fyrir slysi, er áfall. Áfallinu
fylgir sorg, úrvinnsla og þá barátta
við að lifa með afleiðingunum.
Reynsla annarra, leiðsögn og
fyrirmynd er þá mikils virði, en
hennar verður ekki notið nema
með öflugu starfi þeirra sem þekkja
og að málum koma. Það starf er
unnið af Stómasamtökum íslands.
Sá andi sem unnið er eftir er leið
til árangurs. Að lifa er mikilvægt,
en láta ekki áföllin í lífinu stjórna lífi
okkar.
Fyrir hönd Öryrkjabandalags
íslands óska ég Stómasamtökunum
til hamingju með árin 25 og þann
árangur sem náðst hefur. Um leið
er ég þess fullviss að markvisst
starf heldur áfram. Starf sem eykur
lífsgæði þeirra einstaklinga sem
starfið grundvallast á og um leið
okkar allra.
Emil Thóroddsen,
formaöur ÖBI
29
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44