
(9) Blaðsíða 9
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna
í málefnum Stómasamtakanna sem sett
hefur svip á starfsemi þeirra æ síðan. Á
þessum fundi gerðist þetta helst:
1. Áveðið að setja á laggirnar fréttabréf.
2. Koma á samstarfi við sjúkrahúsin í
Reykjavík.
3. Samþykkt að fara í kynnisferð til
Akureyrar ásamt fulltrúa frá Samhjálp
kvenna.
4. Áveðið að taka upp samstarf við
erlend stómasamtök á Norður-
löndunum og víðar í Evrópu.
5. Drög lögð að vetrarstarfi með fundum
um mataræði og skolun.
6. Ganga frá félagaskrá með sem
gleggstum upplýsingum.
Stjórnin hefst þegar handa við að
kynna starfsemi sína út á við og m.a.
fóru þau Ólafur og Halldóra til Akureyrar
um veturinn. Stómasamtökin tóku þátt í
Opnum degi í tilefni alþjóðaárs fatlaðra
29. mars 1981 að boði fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík ásamt
um tuttugu öðrum félögum. Formaður
samtakanna flutti erindi í Hjúkrunarskóla
íslands og Nýja hjúkrunarskólanum að
beiðni kennara og skólastjóra. Þáverandi
landlæknir, Ólafur Ólafsson, sýndi hinum
nýstofnuðu samtökum mikinn áhuga og
boðaði formanninn á sinn fund.
Það kemur glögglega í Ijós að
þetta fyrsta starfsár samtakanna hefur
verið mjög annasamt en jafnframt
árangursríkt.
Fyrsti aðalfundur félagsins eftir
stofnfund var haldinn 9. apríl 1981.
Ólafur R. Dýrmundsson og Júlía
Ólafsdóttir gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs. Kristinn Helgason er kosinn
formaður til tveggja ára en aðrir í stjórn
eru Stefán Halldórsson ritari, Þórey
Sveinbergsdóttir gjaldkeri og Jóhanna
Baldursdóttir og Benedikt Guðlaugsson
varamenn. Árgjald var ákveðið kr. 30.
Á öðrum aðalfundi félagsins,
11. maí 1982, er ákveðið að breyta
nafni félagsins úr Stómasamtökin í
Stómasamtök íslands - Isilco. Var þetta
gert til samræmis við systursamtökin á
Norðurlöndunum.
Árið 1982 var Akureyrardeild Stóma-
samtakanna komið á fót þó aldrei hafi
verið um formlega stjórn að ræða. Vigdís
Steinþórsdóttir hjúkrunarfræðingur var
í mörg ár talsmaður hópsins en hún
annaðist þá sem fóru í stómaaðgerð.
Fréttabréfið verður til
Fyrsta verkefni nýkjörinnar stjórnar sem
kom saman 29. október var að hefja
útgáfu fréttabréfs. Fyrsta fréttabréfið leit
dagsins Ijós í nóvember 1981. Á forsíðu
segir m.a.:
„Með þessu fréttabréfi hefst nýr
þáttur í starfseminni. Tilgangurinn er
m.a. að flytja fróðleik og fréttir af okkar
málum og að upplýsingar berist til allra
sem óska að fylgjast með, hvar sem þeir
eru búsettir á landinu."
Hér er fréttabréfinu frá upphafi
markaður sá tilgangur sem það hefur
ætíð haft, þ.e. að flytja fróðleik og
fréttir sem koma þeim sem búa á
landsbyggðinni ekki hvað síst að gagni.
Fyrstu árin koma út tvö til þrjú tölublöð á
ári en smám saman fjölgar þeim og 1986
komu út sex blöð. Þess var gætt nánast
frá byrjun að númera hvert tölublað
þannig að auðvelt hefur verið að fylgjast
með fjölda þeirra frá upphafi. Blað nr. 50
kom út í nóvember 1994 og 100. tbl. kom
út í október 2003. Frá fyrstu tíð hefur
fréttabréfið verið notað til að auglýsa
fundi félagsins. Yfirleitt hefur formaður
eða aðrir stjórnmenn séð um fréttabréfið
en hin seinni ár hefur sérstakur ritstjóri
SAMTflKlN
FRÉTTdBRÉF
1. LbL. 1. árqíng>jr Kiv. 1981
IWNGJ.MGUR
16, okt. 1980 voru ítómaaaratokir. fcirmlegn Rt-nf nnfi.
Ar j,& 1<>77 hafíi hópur óhugafólks bundlst sfsrtt.Aknni að
vinna að málefno»n stómafólks og hefur þetta áhugu-
fólk u»ntilð injttg þýólngarniikið braiitryójrndaatsrf s«it
varð kveikjan aó siofnun fól-agsins.
Með þ>essu fréttabrefi hefst nýv báttnr í starfseftl-
ínni. Tilgangurfnn er m.a. að Flytja fróó1e;k og
fróttir af okkar mAlum og að upnlýsingar her-st til
allra getft óska aó fylgjast með, hvar sen þefr ern hú-
settir A l.aridinu.
Hér á 1 an<31 munu hafa verið framk’í-tuirrlar yf 1 r 20
ntómaaðgfiróir á irinu 1980, Ekki bhfum vtð tftlu y£ir
fdölda stómaþega hór A iandi en þeir jnnnu vera um
150-200 t.a 1 ej n s .
í hiriurn Ror ð'urlöndunum munu vara vo ÍD-IE þúaund
stcmaþegar i hverju lar.ót ng á Bretlar.di uitl L2? þiló,
Skiptingin milli tegunda aógoróa mun vera ca. S5-70S
coioetomy. 1 5— 20% iMostomy on ioí urosuomy og annað,
rvi miéur Virðist- erfttt aó ná til þeirra aem geng-
iat hafa midir etóioaaðgerðir hér á landi. Er ná evo
kcíir.ið að viö hSfum nar enga vitneskju UTP. nöfn þeirra
nem gengint kafa undir þessar aðge”ðir fra mióju ári
1979 .
Við vitum þýðingu faese nö fá miðiað af reynslu
þeirra sem gangið hafa í gegnuui sllka aógcrð.
Við heitiun á alla sera áhoga hufa á þeesum málum að
atuöla aó þvi aö sem fleatir gerist félíigar t Stóma-
samtökunun.
9
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44