
(8) Blaðsíða 8
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna
erlendis af sömu aðilum og kosta
laun hans.
4. Að nú þegar hefji stjórnir Krabbameins-
félags íslands og Krabbameinsfélags
Reykjavíkur viðræður við Tryggingaráð
þess efnis að breytt verði þeirri skipan
mála að sjúklingar þurfi árlega að
endurnýja læknisbeiðnir um notkun
hjálpargagna eins og stómavara.
Mikilvægasti árangurinn af beiðni
stjórnar Stómahópsins og umræðuhóps-
ins er án efa ráðning hjúkrunarfræðings
við Hjálpartækjabankann. Aðrar kröfur
urðu hins vegar að bíða nokkur ár eins og
ráðning annars stómahjúkrunarfræðings
á spítala og lenging gildistíma skirteina.
Hjálpartækjabankinn hefur útvegun
stómavara
Fyrri hluta ársins 1980 barst Stóma-
hópnum höfðinglegur styrkur frá Krabba-
meinsfélagi Reykjavíkur að upphæð kr.
1,5 millj. Skyldi honum varið til stofnunar
ráðleggingarstöðvar við Hjálpartækja-
banka Rauða kross íslands og Sjálfs-
bjargar sem verið var að koma á fót. Til
þessara starfa var ráðin Edda Ólafsdóttir
hjúkrunarfræðingur en hún hafði unnið
við umönnum stómaþega á sjúkrahúsi
í Danmörku í fimm ár. Edda hefur sem
kunnugt er gegnt þessu starfi óslitið síðan.
Einnig kom sér vel höfðingleg gjöffrá
Þórdísi M. Thoroddsen, aldraðri konu frá
Kvígindisdal í Vestur-Barðastrandasýslu
að upphæð kr. 50.000.
Edda hóf störf hjá Hjálpartækja-
bankanum í ágúst 1980 og vann aðeins
tvo daga vikunnar fyrstu fimm árin. Árið
1985 var hún ráðin í hálft starf sem fljótlega
breyttist í fullt starf. Hjálpartækjabankinn
var fyrst til húsa á horni Nóatúns og
Skipholts en flutti síðar í Hátúnið.
Þetta sama ár kynnti Ólafur R.
Dýrmundsson kennurum og nemum
við Hjúkrunarskóla íslands vandamál
stómaþega eftir aðgerð og málefni
Stómahópsins. Þess konar kynning varði
í nokkur ár, féll niður um tíma en hefur
verið tekin upp á ný sem hluti af námi
þriðja árs nema.
Kynning á málefnum stómaþega
meðal hjúkrunarnema bar m.a. þann
árangur að fjórir þeirra mættu á fund
Stómahópsins í maí 1980 þar sem þeir
óskuðu eftir að gera könnun á viðhorfum
og högum stómaþega. Nemarnir skiluðu
síðar niðurstöðum þeirrar könnunar.
Áhugi á starfinu talsverður
Áhugi á starfsemi Stómahópsins meðal
stómaþega sjálfra hefur verið talsverður
alveg frá upphafi. Hvergi kemur fram
fjöldi þeirra sem sóttu fundi fyrstu tvö
starfsárin eða fyrstu tvo veturna en það
lætur nærri að hann hafi verið um 20
að jafnaði. Á fyrsta fundi starfsársins
1979-80 er farið að skrá fundargjörðir
hvers fundar og fundarmenn rita nöfn
sín í fundarbók. Á þessum fundi mættu
23 en þar kynnti fulltrúi frá Ó. Johnson &
Kaaber nýjungar í stómavörum, einkum
fyrir urostómaþega. Þá var samþykkt að
dreifa leiðbeiningarbæklingi sem ÓJK
hafði látið þýða til allra þeirra sem voru
á spjaldskrá.
Fundur sem haldinn var í janúar
1980 var fjölsóttur enda bættust þá
margir í hópinn. Alls mættu 33 á þann
fund. Sigurgeir Kjartansson skurðlæknir
var gestur fundarins. Flutti hann stutt
ávarp og svaraði fýrirspurnum. Sigurgeir
hafði þá nýlega ritað fróðlega grein
um stómaaðgerðir í Fréttabréf um
heilbrigðismál.
Umræður voru Ijörugar segir í fundar-
gjörð þessa fundar um ýmis mál eins
og útvegun hjálpartækja, vöntun á
upplýsingum og leiðbeiningum og
tengslum við lækna. Þá komu fram
hugmyndir á þessum fundi þess efnis
að fólk skipti sér í hópa eftir tegundum
aðgerða og boðað yrði til sérstakra funda
meðal colostómaþega annars vegar og
ileostómaþega hins vegar. Hvergi kemur
þó fram að slíkir fundir hafi verið haldnir.
Dæmi um hugmynd sem ekki tókst að
hrinda í framkvæmd.
Skömmu fyrir stofnun samtakanna
birtist í 39. tbl. Vikunnar, dags. 25.
september 1980, fjögurra síðna grein um
stómaaðgerðir, starfsemi Stómahópsins
og helstu baráttumál hans, ásamt
viðtölum við nokkra stómaþega. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem fjallað er
opinberlega um stómaaðgerðir og
hagsmunamál stómaþega hér á landi.
Greinarhöfundur getur ekki nafn síns né
hvaðan heimildir eru fengnar en þó er
vitað að hann hafði samband við Ólaf R.
Dýrmundsson, talsmann Stómahópsins,
sem lét allar upplýsingar góðfúslega í té.
Stómasamtök íslands stofnuð
Eftir mikið undirbúningsstarf Stóma-
hópsins var stofnfundur Stómasamtak-
anna haldinn í húsnæði Krabbameins-
félags íslands að Suðurgötu 22,
fimmtudaginn 16. október 1980 kl.
17. Á stofnfundinn mættu 33 félagar.
Með fundarboði höfðu fylgt drög að
lögum félagsins sem kynnt voru og
rædd í upphafi fundar. Eftir minniháttar
breytingar voru þau samþykkt einróma
og þar með höfðu Stómasamtökin verið
formlega stofnuð.
Halldóra Thoroddsen flutti kveðjur
og árnaðaróskir frá Krabbameinsfélagi
íslands og Reykjavíkur en hún hafði
setið undirbúningsfundi Stómahópsins
fyrir hönd þessara félaga og átt drjúgan
þátt í tilveru hópsins.
Fyrsta stjórn samtakanna var þannig
skipuð: Ólafur R. Dýrmundsson formaður.
Aðalmenn í stjórn! Kristinn Helgason
og Þórey Sveinbergsdóttir. (Þau skiptu
síðar með sér verkum þannig að Kristinn
var ritari og Þórey gjaldkeri.) Varamenn
í stjórn: Stefán Halldórsson og Júlía
Ólafsdóttir. Skoðunarmenn reikninga
voru kjörnir Gunnlaugur B. Daníelsson og
Hermann Helgason og Jóhanna Baldurs-
dóttir til vara.
Fyrsta starfsár Stómasamtakanna
Fyrsti stjórnarfundurer haldinn 29. október
1980. Þá þegar er mörkuð ákveðin stefna
8
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44