(10) Blaðsíða 10
25 ára afmælisrit Stómasamtakanna
verið ráðinn til þeirra starfa. í ársbyrjun
1985 er reyndar skipuð þriggja manna
ritnefnd sem starfaði skamma hríð.
Tengsl við sjúkrahúsin
Eitt af allra mikilvægustu verkefnum
Stómasamtakanna frá upphafi var að efla
tengsl við sjúkrahúsin. Ákveðið var á fyrsta
stjórnarfundinum að ræða við lækna og
hjúkrunarfólk á Landakotsspítala en síðar
voru svo Borgarspítalinn og Landspítalinn
heimsóttir en á þessum árum voru
stómaaðgerðir framkvæmdar á þessum
þremur spítölum. Megintilgangurinn var
auðvitað sá að koma á fót heimsóknar-
og stuðningsþjónustu til að þeir sem
hefðu farið í stómaaðgerð gætu miðlað
þeim er ættu slíka aðgerð fyrir höndum
af reynslu sinni.
Það var einnig áhugamál Stóma-
samtakanna frá fyrstu tíð að allar
stómaaðgerðir yrðu gerðar á einum stað
þar sem góð reynsla og mikil þekking
á sviði stómaaðgerða væru fyrir hendi
í stað þess að dreifa kröftunum. Með
sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík
hefur þetta markmið loks orðið að veru-
leika en í dag eru allar stómaaðgerðir
í Reykjavík einungis framkvæmdar á
Landspítalanum við Hringbraut.
Heimsóknarþjónustan
Á fyrsta starfsári Stómasamtakanna
var heimsóknar- og stuðningsþjónustu
komið á fót að undangengnum fjórum
fundum með læknum og hjúkrunarfólki.
Hjúkrunarfræðingarnir Elísabet Ingólfs-
dóttir og Alda Halldórsdóttir, sem var í
stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur
og til aðstoðar stuðningshópunum, áttu
drjúgan þátt í mótun heimsóknarhópsins.
Þáverandi formaður, Ólafur R.
Dýrmundsson, skrifaði drög að leið-
beiningum að breskri fyrirmynd og
við frágang þeirra kom Páll Gíslason
læknir m.a. við sögu. Valdir voru 10-12
stómaþegar af skrá, eftir aðgerð, aldri og
kyni; flestir með áralanga reynslu. Þessi
heimsóknarlisti hefur verið endurnýjaðar
öðru hvoru. Hann liggur frammi á þeim
sjúkrahúsum þar sem stómaaðgerðir eru
framkvæmdar og hafa margir nýtt sér
þessa þjónustu, bæði fyrir og eftir aðgerð.
Stjórnin hefur kallað heimsóknarhópinn
saman öðru hvoru til skrafs og ráðagerða
og óhætt er að fullyrða að þetta hefir verið
einn mikilvægasti þátturinn í starfsemi
samtakanna frá upphafi. Þeir sem hafa
notað sér þessa þjónustu eru á einu máli
um að heimsókn stómaþega hafi í senn
jákvæð og uppörvandi áhrif á þá.
Tengsl við erlend samtök
Strax á fyrsta stjórnarfundi Stóma-
samtakanna er fjallað um nauðsyn þess
að tengjast erlendum stómasamtökum.
Á öðrum stjórnarfundi (9. desember
1980) upplýsir formaður að hann hafi
skrifað dönsku stómasamtökunum -
Copa - og alþjóðasamtökum stómaþega
- International OstomyAssociation (IOA)
og beðið um upplýsingar með inngöngu í
huga. Þegar 3. stjórnarfundur er haldinn
(29. janúar 1981) hafa svör borist frá
Copa og IOA sem að vonum voru mjög
vinsamleg og fylgdu með upplýsingar
um samtökin. Á þessum fundi er ákveðið
að Stómasamtökin sæki um aðild að
alþjóðasamtökunum sem fullgildur aðili,
fremur en aukaaðili, enda munur á
kostnaði hverfandi lítill.
Sumarið 1982 fór Kristinn Helgason
á alþjóðaþing IOA sem haldið var í
Munchen í Þýskalandi en þar kynnti
hann starfsemi Stómasamtakanna en
Krabbameinsfélag íslands styrkti för
hans. Á þessum fundi var aðild okkar að
IOA samþykkt.
Að frumkvæði sænsku stóma-
samtakanna voru Stómasamtök íslands
hvött til að senda fulltrúa á norræna
þingið sem haldið var í Stokkhólmi í
ágústlok 1981 og varákveðið að Kristinn
Helgason sækti það fyrir hönd okkar. Á
þessu þingi kom sú ósk fram að næsti
Norðurlandafundur yrði á íslandi. Dagana
14.-16. ágúst 1982 er því í fyrsta sinn
haldið Norðurlandaþing stómasamtaka
hér á landi. Átján fulltrúar mættu á
þetta þing frá öllum Norðurlöndunum.
Samtökin kynntu starfsemi sína og talaði
Stefán Halldórsson fyrir hönd íslands. í
erindi hans kom m.a. fram að félagar i
Stómasamtökum íslands er um 100.
Þessi Norðurlandaþing hafa verið
haldin árlega. Næsti fundur hér á landi er
þó ekki fyrr en 1989 og sá þriðji 1996 en
hann var haldinn á Akureyri. Árið 2001
er fundurinn haldinn á Hvolsvelli. Þá
höfðu Norrænu stómasamtökin - Nordic
Ostomy Association (NOA) verið nýlega
stofnuð formlega og var Sigurður
Jón Ólafsson þáverandi formaður
Stómasamtakanna fyrstur íslendinga til
að gegna embætti formanns NOA. Árið
2006 er því röðin komin að íslandi á ný.
Mariann Bruce, stómahjúkrunar-
fræðingur frá Noregi, kom gagngert
hingað til lands á vordögum 1984 til
að halda fundi með stómaþegum og
hjúkrunarfólki norður á Akureyri og
í Reykjavík. Vigdís Steinþórsdóttir
hjúkrunarfræðingur tók á móti henni fyrir
norðan og kynnti Mariann sér aðstöðu
stómaþega á Fjórðungssjúkrahúsinu og
hélt fund með hjúkrunarfræðingum og
sjúkraliðum þar. 20-25 manns mættu á
þann fund. Stuttu síðar hélt hún fund með
starfsfólki á Borgarspítalanum en þar
mættu 30-40 manns til að hlýða á erindi
hennar. Daginn eftir var svo aðalfundur
Stómasamtakanna þar sem hún flutti
fróðlegt erindi og sýndi myndband.
Fyrir Norðurlandaþingið 1996 sem
haldið var á Akureyri reyndi stjórn
Stómasamtakanna að fá fulltrúa frá
Færeyjum og Grænlandi því fram að
þessu höfðu þessi lönd ekki átt fulltrúa
á þessum þingum enda engin skipulögð
samtök stómaþega i þeim. Tilefnið
var m.a. að á þinginu átti að fjalla um
þjónustu við stómaþega í dreifbýli. Með
góðri aðstoð krabbameinsfélaganna
á íslandi og í Færeyjum tókst að hafa
uppi á stómaþega í Færeyjum sem var
reiðubúinn að koma til íslands og segja
frá reynslu sinni. Hann bjó afskekkt og
10
(1) Blaðsíða 1
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44
(2) Blaðsíða 2
(3) Blaðsíða 3
(4) Blaðsíða 4
(5) Blaðsíða 5
(6) Blaðsíða 6
(7) Blaðsíða 7
(8) Blaðsíða 8
(9) Blaðsíða 9
(10) Blaðsíða 10
(11) Blaðsíða 11
(12) Blaðsíða 12
(13) Blaðsíða 13
(14) Blaðsíða 14
(15) Blaðsíða 15
(16) Blaðsíða 16
(17) Blaðsíða 17
(18) Blaðsíða 18
(19) Blaðsíða 19
(20) Blaðsíða 20
(21) Blaðsíða 21
(22) Blaðsíða 22
(23) Blaðsíða 23
(24) Blaðsíða 24
(25) Blaðsíða 25
(26) Blaðsíða 26
(27) Blaðsíða 27
(28) Blaðsíða 28
(29) Blaðsíða 29
(30) Blaðsíða 30
(31) Blaðsíða 31
(32) Blaðsíða 32
(33) Blaðsíða 33
(34) Blaðsíða 34
(35) Blaðsíða 35
(36) Blaðsíða 36
(37) Blaðsíða 37
(38) Blaðsíða 38
(39) Blaðsíða 39
(40) Blaðsíða 40
(41) Blaðsíða 41
(42) Blaðsíða 42
(43) Blaðsíða 43
(44) Blaðsíða 44