(9) Page 9
40 ára afmælisrit Stómasamtakanna | 9
Bókarskrifin klárlega
sáluhjálp
Í síðasta kafla bókarinnar kemur
fram, að þessar fjórar persónur
eru allar þú sjálfur sinn á hvoru
tímabili. Það kemur í ljós, að
nöfn persónanna eru ekki valin
af hendingu. Þau mynda þitt
nafn Ágúst. Er það rétt skilið? Þú
gengur mjög nærri þér i þessari
bók og kaflinn um Úlfar í lokin er
sérlega áhrifaríkur. Fannstu hjá
þér knýjandi þörf til að segja frá
þessum hluta í lífi þínu? Eða var
þetta þín leið til að skrifa þig frá
þessum tímabili í lífinu, að því
marki sem það er hægt?
Já, þetta er allt ég og sýnir mig,
Ágúst. Fæstir þekkja allar mínar
hliðar og því fannst mér svo
viðeigandi að segja sögu af fjórum
einstaklingum, sem voru í reynd allir
ég. Ég geri í raun ekki greinarmun á
köflum bókarinnar, þeir eru í raun
allir að gera mig berskjaldaðan á
einn eða annan hátt. En ég ákvað
einmitt að sýna hina raunverulegu
reynslu svo að lesandinn fái vonandi
einhvern skilning á stöðu þess
veika. Ég vildi ekki fegra eða fela
neitt eins og aðrir hafa gjarnan gert.
Líf mitt var svona „skitið“ og svona
„snargeðveikt“ og þannig vildi ég
stíga fram. Það merkilega er hvað
fólk hefur tekið þessari ber
skjölduðu sögu vel og í stað þess að
sjá veikleika mína þá virðast þau sjá
styrkinn í því að komast í gegnum
þessar áskoranir og áföll og standa
beinn – aftur og aftur og aftur.
Skrif bókarinnar voru klárlega
sáluhjálp fyrir mig og það var
megintilgangurinn í upphafi. Hefði
ég bara skrifað bókina og ekki gefið
út þá hefði það samt verið þess
virði. Slíkt var verðmætið í
sjálfskoðuninni, tilfinningalegu
hreinsuninni og uppgjörinu við
fortíðina.
Þú hefur eitthvað gert af því
að semja ljóð og gert lög við. Er
þetta bara tómstundagaman eða
hyggur þú á útgáfu í einhverju
formi?
Þetta er tómstundagaman sem
kemur og fer. Þetta byrjaði ekki fyrr
en eftir síðustu maníu, sem
markaði upphaf í mínu lífi á margan
hátt. Stundum koma tímabil þar
sem það flæða allar gáttir en þess á
milli er minna um sköpunina. Ég
gaf út litla ljóðabók, sem ég gaf
vinum og fjölskyldu ein jólin. Þá fór
ég að spila þar sem ég samdi
fjölmörg lög á skömmum tíma, sem
endaði með því að ég fór að spila á
börum, í Reykjavík og meira að
segja í Edinborg. Þetta leiddi til
þess að ég gaf út fjögur lög á
Spotify undir nafninu Agust Agust
og hafa þau heyrst aðeins í útvarpi,
en þau tengjast persónum í
bók inni. Þannig að, jú, ég er að gefa
út í einhverju formi, en þar fyrir utan
er ekkert í kortunum sem stendur.
Hver veit hvað gerist næst, en ég er
t.d.með fjórar skáld sögur á
frumstigi, hverja aðra ólíkari.
Þess má geta að Riddarar
hringavitleysunnar hefur einnig
verið gefin sem hljóðbók og er
hægt að hlýða á hana hjá Storytel.
Vera til staðar og láta gott af
sér leiða
Hvað er mikilvægast í lífinu?
Heilbrigði skiptir öllu. Það veit ég
vel enda þekki ég vel líf án heilsu.
Því reyni ég að lifa vel og gæta að
heilbrigði í næringu, svefni,
hreyfingu, viðhorfi og samskiptum.
Þannig getur maður einbeitt sér að
því sem skiptir auðvitað svo miklu
máli – að geta verið til staðar fyrir
aðra og látið gott af sér leiða.
Hvernig temur maður sér jákvætt
lífsviðhorf?
Ég veit það í raun ekki en veit þó
að sama hvað kemur fyrir, stórt eða
smátt, þá hefur maður alltaf val um
hvernig maður bregst við, sem
sigurvegari eða fórnarlamb – eins
og mamma mín orðar það gjarnan.
Ætli það sé ekki einhver lykill að
jákvæðni – að velja að læra af
áskoruninni og einfaldlega halda
áfram.
Að segja sögu sem þessa er mikil opinberun og gefur
mörgum tækifæri til þess að sjá margar hliðar eins
manns. En sögurnar eru ekki sagðar til þess, heldur til
að gefa innsýn í stöðu annarra og auka skilning á henni.
Til að ýta jafnvel við núverandi viðhorfum og aðferðum.
Til að gera tilveru þess sjúka og aðstandenda þeirra
betri, þó ekki væri nema örlítið.
(Riddarar hringavitleysunnar, s. 211)
Alltaf val um
hvernig maður
bregst við, sem
sigurvegari eða
fórnarlamb
(1) Page 1
(2) Page 2
(3) Page 3
(4) Page 4
(5) Page 5
(6) Page 6
(7) Page 7
(8) Page 8
(9) Page 9
(10) Page 10
(11) Page 11
(12) Page 12
(13) Page 13
(14) Page 14
(15) Page 15
(16) Page 16
(17) Page 17
(18) Page 18
(19) Page 19
(20) Page 20
(21) Page 21
(22) Page 22
(23) Page 23
(24) Page 24
(25) Page 25
(26) Page 26
(27) Page 27
(28) Page 28
(29) Page 29
(30) Page 30
(31) Page 31
(32) Page 32
(33) Page 33
(34) Page 34
(35) Page 35
(36) Page 36
(37) Page 37
(38) Page 38
(39) Page 39
(40) Page 40
(41) Page 41
(42) Page 42
(43) Page 43
(44) Page 44
(45) Page 45
(46) Page 46
(47) Page 47
(48) Page 48
(49) Page 49
(50) Page 50
(51) Page 51
(52) Page 52
(53) Page 53
(54) Page 54
(55) Page 55
(56) Page 56
(57) Page 57
(58) Page 58
(59) Page 59
(60) Page 60
(61) Page 61
(62) Page 62
(63) Page 63
(64) Page 64
(65) Page 65
(66) Page 66
(67) Page 67
(68) Page 68
(69) Page 69
(70) Page 70
(71) Page 71
(72) Page 72
(2) Page 2
(3) Page 3
(4) Page 4
(5) Page 5
(6) Page 6
(7) Page 7
(8) Page 8
(9) Page 9
(10) Page 10
(11) Page 11
(12) Page 12
(13) Page 13
(14) Page 14
(15) Page 15
(16) Page 16
(17) Page 17
(18) Page 18
(19) Page 19
(20) Page 20
(21) Page 21
(22) Page 22
(23) Page 23
(24) Page 24
(25) Page 25
(26) Page 26
(27) Page 27
(28) Page 28
(29) Page 29
(30) Page 30
(31) Page 31
(32) Page 32
(33) Page 33
(34) Page 34
(35) Page 35
(36) Page 36
(37) Page 37
(38) Page 38
(39) Page 39
(40) Page 40
(41) Page 41
(42) Page 42
(43) Page 43
(44) Page 44
(45) Page 45
(46) Page 46
(47) Page 47
(48) Page 48
(49) Page 49
(50) Page 50
(51) Page 51
(52) Page 52
(53) Page 53
(54) Page 54
(55) Page 55
(56) Page 56
(57) Page 57
(58) Page 58
(59) Page 59
(60) Page 60
(61) Page 61
(62) Page 62
(63) Page 63
(64) Page 64
(65) Page 65
(66) Page 66
(67) Page 67
(68) Page 68
(69) Page 69
(70) Page 70
(71) Page 71
(72) Page 72