
(15) Blaðsíða 13
Menningarmál
Framtíð og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar eru ekki síst undir því komin að hún
efli menningu sína og tungu og þekki sögu sína. Vegna fámennis er ábyrgð og
frumkvæði hvers og eins mikilvægt. Menning er lifandi og breytileg en ekki kyrr-
stæð frekar en lífið og þarfnast því stöðugrar endurnýjunar og aðhlynningar. Skap-
andi menning er nauðsynlegt mótvægi við þann andlega doða sem fylgir vaxandi
síbylju og tæknihyggju. Menning blómstrar ekki með valdboði eða miðstýringu
heldur á hún að einkennast af valddreifingu og virkni. Það þarf að skilgreina hlut-
verk ríkisins í menningarmálum upp á nýtt, móta menningarstefnu, endurskoða
störf og stefnu listastofnana ríkisins og þau lög sem um þær gilda m.a. með það
fyrir augum að auka valddreifingu og tryggja áhrif kvenna. Sérstaklega þarf að efla
alla listmenntun í landinu og hraða uppbyggingu nýs listaháskóla. Breyta þarf
nafni menntamálaráðuneytisins þannig að það beri heiti mennta- og menningar-
mála og gera menningarmálum þar með hærra undir höfði en nú er gert.
Það er íslenskri menningu til framdráttar að hafa opnar gáttir til allra átta. Þar
gegna fjölmiðlar mikilvægu hlutverki, en með hinni svokölluðu fjölmiðlabyltingu
má segja að flóðgáttir hafi opnast. í þeirri flóðbylgju verður æ erfiðara að fóta sig
og halda áttum, ekki síst fyrir börn og unglinga. Besta vörnin er án efa sú að gefa
börnum kost á skapandi menningarstarfi, efla hvers kyns menningarfræðslu og
auka hlut innlendrar framleiðslu hjá stærstu menningarstofnun þjóðarinnar,
Ríkisútvarpinu.
íslenskar konur styðja menningarlífið af fádæma dugnaði, bæði með virkri
þátttöku og sem njótendur. Leiksýningar, málverkasýningar, tónleika og ballett,
svo dæmi séu tekin, sækja konur í mun ríkara mæli en karlar. Þarna byggja konur
á gamalli menningarhefð. Hannyrðir kvenna, vefnaður og útsaumur, var sú tegund
myndlistar sem mest var stunduð hér á landi á fyrri öldum og útsaumsverk kvenna
eru meðal okkar bestu listaverka frá þeim tímum. Löngum var það hlutverk kvenna
að bera menningararfinn frá kynslóð til kynslóðar, með því að kenna börnum
lestur, kvæði og segja þeim sögur.
Það verður þó hvorki sagt að opinbert menningarlíf á íslandi spegli heim og
viðhorf kvenna né að konur í listum njóti stuðnings í samræmi við framlag þeirra,
hugvit og getu. Hlutur kvenna við stjórn lista- og menningarlífsins er afar lítill og
þar verður úr að bæta. Gamalgróin viðhorf karla móta menningu okkar, arfleifðin
sameiginlega er ákveðin af körlum og sagan rituð af þeim. Konur í listum eru
mældar á mælistiku karlveldisins sem sýnir þeim oft á tíðum lítinn skilning.
Þessu þarf að breyta þannig að konur geti skapað að vild og njóti sannmælis.
Konur eiga rétt á menningarheimi sem túlkar líf þeirra og gildismat.
Menningin gegnir því hlutverki að halda okkur vakandi, skapandi, spyrjandi og
glöðum. Henni ber því allt hið besta. Á ári hverju eiga listastofnanir og listamenn
tilveru sína undir misjafnlega velviljuðu fjárveitingarvaldi. Slíkt fyrirkomulag er
íslensku listalífi ekki til framdráttar. Á undanförnum árum hefur menningarlífið
verið svelt og það meira að segja skattlagt illilega með virðisaukaskatti á bækur og
tímarit. Þjóminjasafnið og Þjóðskjalasafnið eru dæmi um menningarstofnanir sem
13
(1) Kápa
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Blaðsíða 33
(36) Blaðsíða 34
(37) Blaðsíða 35
(38) Blaðsíða 36
(39) Blaðsíða 37
(40) Blaðsíða 38
(41) Blaðsíða 39
(42) Blaðsíða 40
(43) Blaðsíða 41
(44) Blaðsíða 42
(45) Blaðsíða 43
(46) Blaðsíða 44
(47) Blaðsíða 45
(48) Blaðsíða 46
(49) Blaðsíða 47
(50) Blaðsíða 48
(51) Blaðsíða 49
(52) Blaðsíða 50
(53) Blaðsíða 51
(54) Blaðsíða 52
(55) Blaðsíða 53
(56) Blaðsíða 54
(57) Blaðsíða 55
(58) Blaðsíða 56
(59) Blaðsíða 57
(60) Blaðsíða 58
(61) Blaðsíða 59
(62) Blaðsíða 60
(63) Blaðsíða 61
(64) Blaðsíða 62
(65) Blaðsíða 63
(66) Blaðsíða 64
(67) Kápa
(68) Kápa
(69) Kvarði
(70) Litaspjald
(2) Kápa
(3) Blaðsíða 1
(4) Blaðsíða 2
(5) Blaðsíða 3
(6) Blaðsíða 4
(7) Blaðsíða 5
(8) Blaðsíða 6
(9) Blaðsíða 7
(10) Blaðsíða 8
(11) Blaðsíða 9
(12) Blaðsíða 10
(13) Blaðsíða 11
(14) Blaðsíða 12
(15) Blaðsíða 13
(16) Blaðsíða 14
(17) Blaðsíða 15
(18) Blaðsíða 16
(19) Blaðsíða 17
(20) Blaðsíða 18
(21) Blaðsíða 19
(22) Blaðsíða 20
(23) Blaðsíða 21
(24) Blaðsíða 22
(25) Blaðsíða 23
(26) Blaðsíða 24
(27) Blaðsíða 25
(28) Blaðsíða 26
(29) Blaðsíða 27
(30) Blaðsíða 28
(31) Blaðsíða 29
(32) Blaðsíða 30
(33) Blaðsíða 31
(34) Blaðsíða 32
(35) Blaðsíða 33
(36) Blaðsíða 34
(37) Blaðsíða 35
(38) Blaðsíða 36
(39) Blaðsíða 37
(40) Blaðsíða 38
(41) Blaðsíða 39
(42) Blaðsíða 40
(43) Blaðsíða 41
(44) Blaðsíða 42
(45) Blaðsíða 43
(46) Blaðsíða 44
(47) Blaðsíða 45
(48) Blaðsíða 46
(49) Blaðsíða 47
(50) Blaðsíða 48
(51) Blaðsíða 49
(52) Blaðsíða 50
(53) Blaðsíða 51
(54) Blaðsíða 52
(55) Blaðsíða 53
(56) Blaðsíða 54
(57) Blaðsíða 55
(58) Blaðsíða 56
(59) Blaðsíða 57
(60) Blaðsíða 58
(61) Blaðsíða 59
(62) Blaðsíða 60
(63) Blaðsíða 61
(64) Blaðsíða 62
(65) Blaðsíða 63
(66) Blaðsíða 64
(67) Kápa
(68) Kápa
(69) Kvarði
(70) Litaspjald