
(55) Page 53
reyna að kaupa sér bót á eigin útliti. Á slíkum vanda þarf að taka með ráðgjöf,
sjálfstyrkingu og breyttu gildismati.
Þótt íslenskar konur hafi mjög sótt í sig veðrið hvað menntun varðar er val
þeirra einhæft og í mörgum vísindagreinum og starfsgreinum eru konur allt of
fáar. Reynslan sýnir að þegar konum fjölgar t.d. í læknisfræði og lögfræði breytast
áherslur þótt þess hafi reyndar lítið gætt enn hér á landi. Skoða þarf skólakerfið
sérstaklega út frá því hvernig það sinnir sérstökum þörfum kynjanna og hvernig
kynin eru hvött til dáða. Kanna þarf sjálfsmynd stúlkna annars vegar og pilta hins
vegar og vinna út frá þeim niðurstöðum sem fást. Erlendar rannsóknir sýna að
sjálfsmynd og sjálfstraust stúlkna er yfirleitt mun veikari en pilta sem m.a. leiðir
af sér ákveðið val á námi og starfi. Forysta stráka í spurningakeppnum, ræðu-
keppnum og í forystu félagslífs í skólum hér á landi sýna að eitthvað mikið er að.
Veik sjálfsmynd margra íslenskra kvenna er eflaust orsök þess hve staða kvenna
er bág og á því hve illa gengur að bæta hana.
Það er einkenni á íslensku samfélagi hve vinna barna og unglinga er mikil bæði
með skóla og í fríum. Þessi vinna er eflaust þroskandi en stundum gengur hún úr
hófi fram og kemur niður á námi og tómstundum. Það er líka séríslenskt fyrirbæri
hve mikil ábyrgð er oft lögð á herðar barna, sem þau eru engan veginn fær um að
standa undir. Há slysatíðni meðal barna hér á landi er jafnvel að hluta til talin
eiga rætur að rekja til þessa. Full ástæða er til að kanna annars vegar vinnu barna
og unglinga og hvort um óeðlilega mikið álag sé að ræða og hins vegar að vekja
athygli á því að börn eiga að fá að vera börn og óeðlilegt er að leggja á þau ábyrgð
sem þau ráða ekki við.
Fíkniefni hafa verið hér í umferð um langt skeið og of mikil áfengisneysla ung-
linga er áhyggjuefni. Slys á ungmennum einkum ungum ökumönnum (piltum) eru
allt of tíð og kosta einstaklingana og samfélagið allt of mikið í limlestingum, sorg
og fjármunum. Ofbeldi og einelti er því miður vaxandi meðal ungmenna og þar
skortir ekki fyrirmyndir og kennslu sem birtist í kvikmyndum, sjónvarpsmyndum
og tölvuleikjum. Á þessum málum verður að taka með meiri og betri fræðslu, um-
ræðum og aðgerðum.
Fræðslu um kynlíf, kynsjúkdóma, barneignir, getnaðarvarnir og alnæmisvand-
ann hefur ekki verið sinnt sem skyldi en þar má ekkert til spara vegna þess að þar
er um forvarnir að ræða sem skipta einstaklingana miklu.
Einn stærsti vandi sem við stöndum frammi fyrir í íslensku þjóðfélagi er
hvernig tryggja megi ungu fólki vinnu í framtíðinni, við hvað það eigi að vinna og
hvernig taka skuli á atvinnuleysi ungs fólks þannig að við lendum ekki í viðlíka
hremmingum og aðrar Evrópuþjóðir. Svörin hljóta að felast í mótun atvinnustefnu
til langs tíma, öflugu menntakerfi, stuðningi við vísindi og rannsóknir og með því
að efla frumkvæði einstaklinga og hópa sem kanna vilja nýja möguleika. Atvinnu-
leysinu þarf að svara með framboði á almennri menntun og starfsmenntun fyrir
atvinnulaus ungmenni og alls kyns átaksverkefnum.
53
(1) Front Cover
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Page 49
(52) Page 50
(53) Page 51
(54) Page 52
(55) Page 53
(56) Page 54
(57) Page 55
(58) Page 56
(59) Page 57
(60) Page 58
(61) Page 59
(62) Page 60
(63) Page 61
(64) Page 62
(65) Page 63
(66) Page 64
(67) Back Cover
(68) Back Cover
(69) Scale
(70) Color Palette
(2) Front Cover
(3) Page 1
(4) Page 2
(5) Page 3
(6) Page 4
(7) Page 5
(8) Page 6
(9) Page 7
(10) Page 8
(11) Page 9
(12) Page 10
(13) Page 11
(14) Page 12
(15) Page 13
(16) Page 14
(17) Page 15
(18) Page 16
(19) Page 17
(20) Page 18
(21) Page 19
(22) Page 20
(23) Page 21
(24) Page 22
(25) Page 23
(26) Page 24
(27) Page 25
(28) Page 26
(29) Page 27
(30) Page 28
(31) Page 29
(32) Page 30
(33) Page 31
(34) Page 32
(35) Page 33
(36) Page 34
(37) Page 35
(38) Page 36
(39) Page 37
(40) Page 38
(41) Page 39
(42) Page 40
(43) Page 41
(44) Page 42
(45) Page 43
(46) Page 44
(47) Page 45
(48) Page 46
(49) Page 47
(50) Page 48
(51) Page 49
(52) Page 50
(53) Page 51
(54) Page 52
(55) Page 53
(56) Page 54
(57) Page 55
(58) Page 56
(59) Page 57
(60) Page 58
(61) Page 59
(62) Page 60
(63) Page 61
(64) Page 62
(65) Page 63
(66) Page 64
(67) Back Cover
(68) Back Cover
(69) Scale
(70) Color Palette